Fráfarandi forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða kjörinn stjórnarformaður félagsins Gefum íslensku séns

Ísfirska átakið Gefum íslensku séns hefur á undanförnum árum vaxið út fyrir svæðið. Til að halda betur utan um starfsemina hefur nú verið stofnað félag og fyrir helgina var haldinn stofnfundur þess. Í stjórn voru kosin Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus, Eliza Reid, rithöfundur með meiru, Martína Jansson, kennari hjá Símenntun Eyjafjarðar, Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, kennari við HÍ og hvatamaður Gefum íslensku séns, og Peter Weiss, fráfarandi forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða, sem jafnframt verður stjórnarformaður félagsins.