Tveir nemendur Háskólaseturs Vestfjarða hljóta styrk Byggðastofnunar til lokaverkefna í byggðamálum

Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Kostur hefur verið ef verkefnið hefur skírskotun í byggðaáætlun.

Stjórn Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum þann 11. desember 2025 að styrkja þrjá meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðamála. Auglýsing um styrkina var birt 16. september 2025 og rann umsóknarfrestur út 10. nóvember. Verkefnin sem sótt er um styrk til skulu hafa skírskotun til markmiða eða aðgerða byggðaáætlunar. Alls bárust 14 umsóknir. Heildarupphæð styrkjanna er 1,2 milljónir króna og hver styrkur er að upphæð 400.000 kr. Styrkirnir eru fjármagnaðir af byggðaáætlun.

Í síðustu úthlutum Byggðastofnunar komu tveir af þeim þremur styrkjum sem veittir voru í hlut nemenda Háskólaseturs Vestfjarða sem stunda meistaranám í sjávarbyggðafræði.

Coastal Fishing in Rural Iceland: Impacts of the strandveiðar system

Styrkþegi: Kevin Graham Wells, Háskólasetri Vestfjarða

Í verkefninu verður lagt mat á strandveiðakerfið sem tekið var upp á Íslandi árið 2009. Strandveiðar, ásamt byggðakvótum, eru tvær mikilvægustu umbæturnar á fiskveiðistjórnun á Íslandi frá því að kvótakerfið var tekið upp á níunda og tíunda áratugnum.

Skoðað verður hvaða áhrif strandveiðar hafa haft á svæðisbundin strandsamfélög frá því að þær voru kynntar til sögunnar. Tvær aðferðir verða notaðar. Í fyrsta lagi verður greining á opinberum gögnum úr opinberum heimildum til að sjá hvort fylgni sé milli innleiðingar strandveiðakerfisins og síðari breytinga á því, og lýðfræðilegra og félags- og efnahagslegra vísbendinga. Í öðru lagi verður rýnihópur sérfræðinga fenginn til að móta sameiginlega endurgjöf um skoðanir á strandveiðakerfinu með því að nota endurtekna spurningalista og endurgjöf.

Sustaining the rural: assessing socio-ecological resilience through farming in Iceland

Styrkþegi: Martina Aymonod, Háskólasetri Vestfjarða

Í verkefninu „Að viðhalda dreifbýlinu: mat á félagslegri og vistfræðilegri seiglu í gegnum búskap á Íslandi“ verður kannað hvernig bændur aðlagast umhverfislegum, félagslegum og efnahagslegum áskorunum. Einnig verður skoðað hvaða þættir efla eða viðhalda seiglu bænda og hvernig þeir styðja samfélögin.

Niðurstöðurnar munu veita innsýn í hvernig er hægt að styrkja nútíð og framtíð dreifbýlisins á Íslandi sem mun jafnframt styðja stefnu og markmið stjórnvalda um að auka jafnvægi og stuðla að sjálfbærni í þróun byggða og dreifbýlis.

 

Við óskum nemendunum innilega til hamingju með styrkina.