Gefum íslensku séns hlýtur viðurkenningu íslenskrar tungu 2026

Félagið Gefum íslensku séns, sem á uppruna sinn hjá Háskólasetri Vestfjarða, hlaut viðurkenningu íslenskrar tungu 2026 við hátíðlega athöfn í Eddu þann 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu.

CoLab-verkefninu lokið – nýjar leiðir til sjálfbærrar nýtingar auðlinda strandsvæða

Ull úr heimabyggð varð að lampaskermum, skeljar að samsettum lífefnum og jurtir og þang að handgerðum pappír á vinnustofu CoLab á Ströndum í sumar. Þar mættust staðbundin þekking á náttúruauðlindum og skapandi hönnun með það að markmiði að kanna nýja möguleika í sjálfbærri nýtingu hráefna úr nærumhverfinu. CoLab-verkefninu er nú lokið og afrakstur þess, meðal annars fjölbreyttar leiðbeiningar og uppskriftir, er aðgengilegur öllum sem vilja kanna hvernig nýta megi lífrænar auðlindir á sjálfbæran og skapandi hátt.

Eðlisræn ferli strandarinnar – náttúruöfl, loftslagsbreytingar og sjálfbær strandsvæðastjórnun

Dagana 26. október til 6. nóvember sátu nemendur við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið Eðlisræn ferli strandarinnar (Physical Processes of Coastal Environments), undir leiðsögn Dr. Jana Cox. Á námskeiðinu var fjallað um náttúruöflin sem móta strandlengjur og hafsvæði, auk þeirra áskorana sem fylgja stjórnun þessara síbreytilegu svæða í ljósi loftslagsbreytinga og mannlegra umsvifa.

Netkynning á meistaranámi í sjávarbyggðafræði og haf- og strandsvæðastjórnun

Þriðjudaginn 1. desember næstkomandi verður haldin netkynning á meistaranámsleiðum Háskólaseturs Vestfjarða í sjávarbyggðafræði og haf- og strandsvæðastjórnun.

Sjálfbær staðbundin hagkerfi í dreifbýli og afskekktum samfélögum

Dagana 26. október til 13. nóvember sækja nemendur Háskólaseturs Vestfjarða námskeiðið Sjálfbær svæðishagkerfi (Sustainable Local Economies), undir leiðsögn dr. Emils Sandström frá sænska landbúnaðarháskólanum (Swedish University of Agricultural Sciences, SLU).