Dr. Catherine Chambers tekur þátt í viðburði um sjávarútveg og fiskneyslumenningu á Íslandi og í Japan

Dr. Catherine Chambers, sem tekur við stöðu forstöðumanns Háskólaseturs Vestfjarða 1. Apríl næstkomandi, dvelur sem stendur í Japan ásamt fjölskyldu sinni, þar sem hún er í rannsóknarleyfi sem gestaprófessor við Háskólann í Tókýó.

Þann 5. febrúar var haldinn alþjóðlegur skiptiviðburður á háskólasvæðinu í Shizuoka undir yfirskriftinni „International Exchange Event to Learn about Iceland's Fisheries Industry and Fish-eating Culture“, þar sem Catherine, sem sérhæfir sig m.a. í fiskveiðistjórnun, var boðið að vera fyrirlesari á viðburðinum.

Viðburðurinn hafði það að markmiði að dýpka gagnkvæman skilning Íslands og Japans á sjávarútvegi og fiskneyslumenningu landanna. Viðburðinum var skipt í tvær lotur og hann var sóttur af 25 þátttakendum, þar á meðal nemendum úr rannsóknarhópi skipuleggjanda viðburðarins, Lee Eun-hee, dósents við Tokai háskóla, og aðilum úr heimabyggð sem tengjast útgerð og fiskveiðum.

Í fyrri hluta erindis síns fræddi Catherine þátttakendur meðal annars um íbúafjölda og landslag Íslands, auk þess að fjalla um fiskveiðar við landið og þær fisktegundir sem veiðast hér helst. Þá ræddi hún einnig um verkefni og framtak á vegum staðbundinna hagsmunasamtaka sjómanna:

Með starfsemi og vinnustofum sem miða að því að nýta framandi ágengar tegundir sem nýjar staðbundnar auðlindir teljum við að það sé mikilvægt að dýpka tengsl samfélags og hafs og hvetja fólk til að njóta hafsins, og við erum að þróa ýmis verkefni í tengslum við það.

Í síðari hluta viðburðarins fór fram „Shizumae Fish Food Study Group“ þar sem þátttakendur veltu fyrir sér réttum sem gætu miðlað aðdráttarafli „Shizumae Fresh Fish“, sjávarafurða sem veiðast við strendur Shizuoka-borgar, til breiðari hóps. Sjómenn sem tóku þátt útbjuggu skötusel (hairtail) sem veiddur var í Suruga-flóa eftir uppskriftum sem nemendur höfðu undirbúið. Nemendur og sjómenn elduðu saman fimm rétti, þar á meðal carpaccio, fiskibollur og fisksoðssúpu, sem þátttakendur nutu þess að bragða á.

Að lokum sagði Lee dósent:

Ásamt nemendum, fólki úr sjávarútvegi og Dr. Chambers gátum við lært um menningu hvors annars og deilt fiskneyslumenningu okkar. Ég hyggst halda áfram að dýpka samstarf mitt við Dr. Chambers, meðal annars með sameiginlegum rannsóknum og öðrum verkefnum.