Stök meistaranámskeið

Hefur þú áhuga á því að taka eitt eða fleiri meistaranámskeið hjá Háskólasetri Vestfjarða? Við tökum vel á móti þér.

Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur Vestfjarða eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Námskeiðin eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.

Í kennsluskrá má finna upplýsingar um þau áhugaverðu námskeið sem kennd eru á hverju skólaári. Námskeiðin eru kennd á staðnámi og í lotum og eru kennd á ensku þar sem nemendahópurinn er alþjóðlegur og kennarar koma alls staðar að úr heiminum.