Dagana 9.–27. febrúar fer fram við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið Outlook to the Future: Coastal Arctic Scenarios.
Námskeiðið er þverfaglegt og veitir nemendum hagnýt verkfæri til að horfa til framtíðar og takast á við breytingar í strandsamfélögum á Norðurslóðum. Í því eru sameinaðir fjórir meginþættir: yfirlit yfir ólíkar aðferðir við framtíðargreiningu, vinnustofa um sviðsmyndir fyrir lítið strandsamfélag á Norðurslóðum, grunnatriði í verkefnaáætlanagerð og þróun verkefnatillögu sem getur verið annað hvort raunveruleg eða tilraunaverkefni sem tengist strandsamfélögum á Norðurslóðum.
Kennslan byggir á verkefnamiðuðu námi þar sem þekking nemenda úr ólíkum greinum er samþætt og dýpkuð. Nemendur kynnast helstu aðferðum við að vinna með framtíðina, en slíkar aðferðir eru víða notaðar bæði hjá opinberum aðilum og í einkageiranum.
Mikilvægur hluti námskeiðsins er vinnustofa þar sem nemendur beita þessum aðferðum til að móta sviðsmyndir fyrir framtíð norðlægra strandsamfélaga. Með þeirri vinnu öðlast þeir heildstæðari sýn á þróun á Norðurslóðum og læra að greina betur þá óvissu, drifkrafta og breytingaferla sem móta svæðið. Jafnframt hjálpar sviðsmyndavinnan þeim að átta sig á hvar þekking þeirra liggur og hvar hana skortir, auk þess sem þau kynnast kostum og takmörkunum algengra sviðsmyndaaðferða.
Í raunverulegum verkefnum er slík framtíðarvinna oft undanfari stefnumótunar og ákvarðana um næstu skref. Af þeim sökum er síðasta vika námskeiðsins helguð verkefnaáætlanagerð. Þar kynnast nemendur helstu verkfærum á borð við rammaáætlanir, áfangaskiptingu og verkþáttalýsingu, sem nýtast jafnt í verkefnastjórnun sem framtíðargreiningu. Að lokum vinna þau eigin verkefnatillögu á grunni þeirrar færni sem þau hafa tileinkað sér.
Kennari námskeiðsins er Adam Stepien, stjórnmálafræðingur við Norðurslóðamiðstöð Háskólans í Lapplandi. Í rannsóknum sínum leggur hann áherslu á stjórnun mála á Norðurslóðum, sérstaklega hlutverk Evrópusambandsins á svæðinu. Hann hefur einnig fjallað um málefni frumbyggja og byggðaþróun á jaðarsvæðum norðursins. Auk fræðastarfa hefur Adam tekið þátt í fjölmörgum ráðgjafar- og stefnumótunarverkefnum þar sem framtíð Norðurslóða hefur verið í brennidepli.
Lestu meira um námskeiðið hér.
Við minnum á að öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur Vestfjarða eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Hafir þú áhuga á að sækja stök námskeið hjá Háskólasetri getur þú kynnt þér kennsluskrána okkar og sent inn umsókn um stakt námskeið.