Í boði eru tvær námsleiðir, Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnun. Hvort tveggja er 120 ECTS eininga nám á meistarastigi, þar af eru 75 ECTS í formi námskeiða og 45 ECTS í formi lokaritgerðar.

 

Staðnám á Ísafirði

Háskólasetur Vestfjarða býður ekki upp á fjarnám. Námið okkar er staðbundið og byggir á virkri þátttöku nemenda, vettvangsferðum í nærumhverfinu og hagnýtum verkefnum sem tengjast Ísafirði og nærsamfélaginu. Mikilvægur hluti námsins felst í samveru, umræðum og samstarfi við kennara, samnemendur og samfélagið á staðnum. Þess vegna þurfa nemendur að vera á Ísafirði á meðan náminu stendur.