Varnatímabil vorönn 2026

Nú er aftur komið að meistaraprófsvörnum hjá nemendum Háskólaseturs Vestfjarða. Varnirnar hefjast á föstudaginn 24. apríl og munu 6 nemendur kynna og verja meistaraverkefni sín á næstu vikum. Að venju eru umfjöllunarefnin afar áhugaverð og fjölbreytt. Varnirnar eru opnar almenningi og fara fram í Háskólasetri. Einnig er hægt að fylgjast með á zoom og má finna linkana í töflunni hér að neðan.

Biðlar til kennara um að taka þátt í könnun um haflæsi

Una Lilja, meistaranemi á öðru ári hjá Háskólasetri Vestfjarða í Haf- og Strandsvæðastjórnun, vinnur nú að rannsókn á því hvernig skólakerfið undirbýr einstaklinga til að taka ákvarðanir sem styðja við heilbrigt haf. Leiðbeinandi hennar er Dr Catherine Chambers, nýr forstöðumaður Háskólaseturs sem hóf störf 1 apríl á þessu ári. Í rannsókn sinni skoðar Una svokallað haflæsi, sem snýst um skilning á tengslum mannfólks og hafs en það gegnir einnig lykilhlutverki í að efla meðvitund um umhverfismál, sjálfbærni og ábyrgð í nýtingu auðlinda hafsins. Þetta hugtak hefur fengið aukna athygli á undanförnum árum en það á sérstaklega vel við á strandsvæðum þar sem hafið er stór hluti af daglegu lífi. Una mun kanna hvernig kennarar nota hafið og ströndina í kennslu og hvernig haflæsi fléttist inn í námsgreinar á öllum skólastigum. Hún biður því alla kennara að taka þátt í könnuninni sinni sem tekur aðeins um 2-5 mínútur að svara og verður opin í takmarkaðan tíma. Einnig er fólk hvatt til þess að deila könnuninni áfram til kennara sem þau þekkja. Hlekk á könnunina má finna hér: Könnun um haflæsi á Íslandi - Háskólasetur Vestfjarða

Reflecting on the course Aquaculture, Environment and Society: Exploring the many facets of aquaculture

Over the past weeks, students at the University Centre of the Westfjords have been taking a closer look at one of today’s most talked-about topics in coastal development through the course Aquaculture, Environment and Society.

Upphaf verkefnis: COLAB

Það er okkur sönn ánægja að kynna COLAB: Strandrannsóknarstofur sem tengja fólk og náttúru, alþjóðlegt verkefni sem styrkt er af áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um farsæla framtíð. COLAB tengir saman samstarfsaðila á Íslandi, í Póllandi og Litháen sem þróa í sameiningu hagnýtar aðferðir til að efla strandsamfélög til að byggja upp staðbundin hagkerfi með mikla seiglu, sem byggja á náttúrulegum og lífrænum auðlindum strandarinnar. Verkefnið leggur áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu, þekkingu samfélagsins og náttúruvænar aðferðir sem styrkja bæði vistkerfi og lífsviðurværi.

Páskaopnun í Háskólasetri Vestfjarða

Háskólasetur Vestfjarða verður lokað hluta páskanna. Húsið verður lokað föstudaginn langa, 3. apríl, og laugardaginn 4. apríl. Inngangurinn frá Suðurgötu verður læstur og lyklaspjöld ekki virk á meðan. Í neyðartilvikum má hafa samband í síma 844 3148.