ARCHAIC

ARCHAIC – Sjálfbær og seig samfélög á norðurslóðum

Loftslagsbreytingar hafa hraðari áhrif á norðurslóðir en flest önnur svæði heimsins. Fyrir afskekkt samfélög getur þetta þýtt aukna hættu á skriðuföllum, snjóflóðum, flóðum, öfgaveðri og annarri náttúruvá. Á sama tíma geta ákvarðanir um hvernig samfélög búa sig undir slíka atburði, bregðast við þeim og ná sér eftir áföll haft langvarandi áhrif á hvar og hvernig fólk býr.

Í rannsóknarverkefninu ARCHAIC er kannað hvernig afskekkt samfélög á norðurslóðum geti orðið öruggari, betur í stakk búin til að takast á við áföll og sjálfbærari í breyttu loftslagi. Verkefnið beinist ekki aðeins að náttúruvánni sjálfri, heldur einnig að þeim erfiðu ákvörðunum sem samfélög og stjórnvöld geta staðið frammi fyrir: Hvernig er hægt að draga úr áhættu? Hvenær er hægt að auka öryggi byggðarlags? Hvenær gæti þurft að flytja byggð á nýjan stað? Og hvenær er enduruppbygging á sama stað sjálfbær kostur?

Verkefnið beinist að fimm nátengdum rannsóknarsviðum: að auka skilning á breyttri áhættu vegna loftslagsbreytinga og áfallaþoli samfélaga; bæta viðvörunarkerfi; rannsaka flutning byggðar frá áhættusvæðum; efla viðbúnað og neyðarstjórnun; og miðla reynslu af aðlögun að loftslagsbreytingum milli samfélaga á norðurslóðum og víðar.

Í ARCHAIC er fjölbreyttum rannsóknaraðferðum beitt og unnið náið með nærsamfélögum, stjórnvöldum og öðrum hagaðilum á Íslandi, Grænlandi og Svalbarða. Með því að bera saman reynslu frá þessum svæðum er markmiðið að draga fram hagnýtan lærdóm sem getur nýst öðrum samfélögum sem standa frammi fyrir sambærilegum áskorunum á norðurslóðum og á öðrum svæðum sem eru viðkvæm fyrir loftslagsbreytingum.

Mikilvægur þáttur verkefnisins er áhersla á sjálfbæra samfélagsþróun. Aðlögun að loftslagsbreytingum snýst ekki eingöngu um að vernda innviði. Hún snýst einnig um að viðhalda öruggum og lífvænlegum samfélögum, skilja hvaða gildi fólk leggur í staðina þar sem það býr og skoða félagslegar og efnahagslegar afleiðingar mismunandi leiða til aðlögunar.

Íslenska rannsóknarteymið

Matthias Kokorsch og Jóhanna Gísladóttir taka þátt í íslenska hluta ARCHAIC. Rannsóknir þeirra beinast einkum að því hvernig samfélög og ákvörðunaraðilar takast á við aðstæður þar sem náttúruvá gerir áframhaldandi búsetu sífellt erfiðari.

Matthias leiðir þann verkþátt sem fjallar um flutning byggðar frá áhættusvæðum. Þar er rannsakað við hvaða aðstæður flutningur byggðar geti orðið raunhæfur aðlögunarkostur, hvernig ákvarðanir um slíka flutninga eru teknar, hverjir koma að þeim og hvaða áhrif flutningarnir hafa á samfélögin sem um ræðir.

Jóhanna leiðir þann verkþátt sem fjallar um hugmyndafræðina Build Back Better (að byggja upp betur en áður) sem valkost við flutning byggðar. Markmiðið er að skilja við hvaða aðstæður enduruppbygging, styrking eða endurskipulagning byggðar í kjölfar náttúruhamfara geti tryggt örugga og sjálfbæra framtíð til lengri tíma og hvenær nauðsynlegt kunni að vera að íhuga flutning byggðar í staðinn.

ARCHAIC tengist einnig náið kennslu og rannsóknum nemenda við Háskólasetur Vestfjarða. Nokkur meistaraverkefni verða unnin í tengslum við rannsóknina og gefst nemendum þannig tækifæri til að taka þátt í yfirstandandi rannsóknum á aðlögun að loftslagsbreytingum, náttúruvá, áfallaþoli samfélaga, flutningi byggðar og sjálfbærri enduruppbyggingu.