Nemendur takast á við gagnagreiningu og túlkun

Dagana 9.–27. febrúar stendur yfir námskeiðið Gagnagreining og túlkun hjá Háskólasetri Vestfjarða, þar sem nemendur fá tækifæri til að efla þekkingu sína og færni í að greina bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknir.

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum traustan grunn í gagnagreiningu og túlkun niðurstaðna. Kennslan byggir á raunverulegum dæmum úr sjávartengdum fræðum og fá nemendur jafnframt að spreyta sig á litlu rannsóknarverkefni þar sem þeir vinna með gögn, greina þau og túlka niðurstöður.

Í megindlega hluta námskeiðsins er farið yfir fjölbreyttar tölfræðilegar aðferðir með sérstaka áherslu á notkun R-umhverfisins. Þar fá nemendur innsýn í aðferðir á borð við lýsandi tölfræði, tölfræðipróf, aðhvarfsgreiningu og almenn línuleg líkön.

Í eigindlega hlutanum er sjónum beint að greiningu viðtala og texta, auk þess sem nemendur kynnast notkun hugbúnaðarins MAXQDA. Einnig er fjallað um grundvallarhugtök rannsókna, svo sem áreiðanleika og réttmæti, og rætt um mikilvægi sjónrænna gagna á borð við töflur og myndir.

Með námskeiðinu fá nemendur því bæði fræðilegan grunn og hagnýta reynslu sem nýtist vel í áframhaldandi námi og rannsóknavinnu.

Kennarar námskeiðsins eru Dr. Matthias Kokorsch og Dr. Michelle Harris.

Lestu meira um námskeiðið hér.

Við minnum á að öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur Vestfjarða eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Hafir þú áhuga á að sækja stök námskeið hjá Háskólasetri getur þú kynnt þér kennsluskrána okkar og sent inn umsókn um stakt námskeið.