Student housing

Stúdentagarðar Háskólaseturs Vestfjarða voru byggðir árið 2023 og samanstanda af 40 stúdíóíbúðum í tveimur byggingum við Fjarðarstræti 20.

Byggingarnar standa við sjávarsíðuna, í um 10 mínútna göngufjarlægð frá Háskólasetrinu og aðeins 3 mínútna göngufjarlægð frá matvöruverslun og miðbæ Ísafjarðar.

Hér að neðan má finna upplýsingar um tvær tegundir íbúða sem eru í boði ásamt sameiginlegri aðstöðu á stúdentagörðunum.

Stúdíóíbúðir

Íbúð á jarðhæð

Verð: 139.000 kr./mán.

Svefnaðstaða: 140 cm breitt rúm

Sérbaðherbergi með sturtu: Já

Lítil séreldunaraðstaða: Já

Sófi: Nei

Skrifborð, skrifborðsstóll og hægindastóll: Já

Búnaður: Lampi, lítill ísskápur, hraðsuðuketill, fataskápur, sæng, koddi og rúmföt.

Möguleiki á leigu fyrir par: Nei

Íbúð á annarri hæð

Verð: 139.000 kr./mán.

Svefnaðstaða: Svefnloft með 140 cm breiðri dýnu (lofthæð getur verið mismunandi)

Sérbaðherbergi með sturtu: Já

Lítil séreldunaraðstaða: Já

Sófi: Já

Skrifborð, stóll og hægindastóll: Já

Búnaður: Lampi, lítill ísskápur, hraðsuðuketill, fataskápur, sæng, koddi og rúmföt.

Möguleiki á leigu fyrir par: Já

 

 Sameiginleg aðstaða

 

Eldhús

Í hverri álmu er sameiginlegt eldhús fyrir hverja 10 íbúa, búið eftirfarandi tækjum og áhöldum:

  • Tveimur stórum ísskápum og tveimur litlum frystiskápum
  • Tveimur uppþvottavélum
  • Tveimur helluborðum og tveimur bökunarofnum
  • Einum örbylgjuofni
  • Einum brauðrist
  • Einni kaffivél
  • Einum hraðsuðukatli
  • Borðbúnaði og eldhúsáhöldum
  • Stóru matarborði

 Þvottahús

Í hvorri byggingu er sameiginlegt þvottahús fyrir 20 íbúa, búið eftirfarandi tækjum:

  • 2 þvottavélum

  • 2 þurrkurum

  • 2 þvottagrindum

 Sameiginlegt rými

Nemendur hafa aðgang að sameiginlegri setustofu með sófa í hverri álmu.

Athugið að myndin hér að ofan er tekin í sérstaklega innréttuðu rými og því getur útlit og skreyting aðstöðunnar verið breytilegt.