Háskólasetur Vestfjarða býður fullorðna einstaklinga úr samfélaginu velkomna í nám. Viltu byggja ofan á þá færni sem þú hefur nú þegar og nýtist þér í starfi? Eða öðlast nýja færni til að skipta um starfsvettvang?
Kannski hefurðu einfaldlega áhuga á að læra um mengun sjávar eða úrgangsstjórnun? Þá gæti verið tilvalið að sækja um meistaranámskeið við Háskólasetur Vestfjarða!
Öll meistaranámskeið HV eru opin fólki af vinnumarkaði. Námskeiðin eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfræðilegum meistaranámsleiðum Háskólasetursins, Haf- og strandsvæðastjórnun og Sjávarbyggðafræði
Skoðaðu kennsluskrá Háskólaseturs Vestfjarða og kynntu þér þau fjölbreyttu og áhugaverðu námskeið sem þar eru í boði.
Námskeiðin eru kennd í lotum og öll kennsla fer fram á ensku, enda er nemendahópurinn alþjóðlegur og kennarar koma víða að úr heiminum.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði fyrir einstök námskeið eru almennt þau sömu og fyrir meistaranámið í heild, þ.e. að umsækjendur hafi lokið grunnnámi á háskólastigi, hvort sem um er að ræða BA-, BSc-, BEd-gráðu eða annað sambærilegt nám.
Mikilvægt er að umsækjendur hafi góða enskukunnáttu þar sem öll kennsla fer fram á ensku.
Gestanemar þurfa að uppfylla kröfur um mætingu og þátttöku í hverju námskeiði.
Gestanám er ekki í boði í fjarnámi.
Hvernig á að sækja um
Fylltu út umsóknareyðublaðið.
Með umsókn þarf að fylgja staðfesting á fyrra námi, í formi staðfestra námsferilsyfirlita.
Umsóknarfrestir
Umsóknir gestanema á eigin vegum eru afgreiddar með reglulegu millibili yfir námsárið. Gott er að umsókn berist að minnsta kosti tveimur mánuðum áður en námskeið hefst. Umsóknir eru lagðar fyrir meistaranámsnefnd.
Gjöld
Gjöld eru 10.000 kr. fyrir hverja ECTS-einingu. Fjögurra ECTS-eininga námskeið kostar því 40.000 kr.
Oft er hægt að sækja í sjóði stéttarfélaga vegna kostnaðar við endurmenntun.