Námsskeið í GIS (Landfræðileg upplýsingakerfi)

Á föstudaginn 6. febrúar lauk námskeiðinu "GIS: Landafræðileg upplýsingakerfi" við Háskólasetur Vestfjarða. Í námskeiðinu fengu nemendur  innsýn í kortagerðartól sem skipta sífellt meira máli í rannsóknum og faglegu starfi á fjölbreyttum sviðum. Landupplýsingakerfi byggja á aldagamalli hefð kortagerðar en tölvur gera okkur kleift að framkvæma rýmisgreiningar og landfræðilega myndræna framsetningu gagna á mun skilvirkari hátt en áður. Góð undirstaða í fræðilegum grunni kortagerðar er engu að síður lykilatriði í að nýta möguleika GIS til fulls. Á námskeiðinu er því lögð rík áhersla á vinnu með kort, framsetningu gagna og sjónræna túlkun, samhliða því að nemendur læra að beita GIS sem öflugu verkfæri í greiningu og miðlun upplýsinga.

Kennari námskeiðsins er Dr. Jiri Panek. Hann er með bæði B.Sc. og M.Sc. gráðu í landafræði og landupplýsingakerfum frá Geoinformatics-deild Palacký-háskóla í Olomouc í Tékklandi, auk doktorsgráðu í þróunarfræðum frá sama háskóla. Rannsóknir Jiri beinast að notkun GIS í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð, með sérstaka áherslu á þátttökumiðaða kortagerð (Participatory GIS). Hann hefur unnið að kortaverkefnum í Kenía og Suður-Afríku og framkvæmt GIS-rannsóknir á Indlandi.

Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.