Háskólasetur Vestfjarða stendur fyrir ráðstefnum og fyrirlestrum af öllum stærðum og gerðum, allt frá stórum alþjóðlegum ráðstefnum á sviði menningar, náttúru og vísinda til smærri óformlegra erinda um allt á milli himins og jarðar. Ráðstefnuaðstaða á Ísafirði og víða um Vestfirði er til fyrirmyndar og svæðið býður upp á marga afþreyingamöguleika.

Eyjar og fjölbreytileiki 2024


Samfélag og náttúra 2022
14. ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið var haldin af Háskólasetri Vestfjarða dagana 12.–14. maí 2022 undir yfirskriftinni Samfélag og náttúra – stál í stál eða hönd í hönd? Ráðstefnan fór fram á íslensku.
CoastGIS 2018
CoastGIS var haldin á Ísafirði í umsjón Háskólaseturs Vestfjarða. Þetta var í 13. sinn sem ráðstefnan var haldin sem alþjóðlegur vettvangur fyrir miðlun þekkingar, hugmynda og reynslu um hvernig landupplýsingar og upplýsingatækni geta nýst stjórnendum og hagaðilum á haf- og strandsvæðum til að skilja betur og stýra nýtingu strandsvæða og auðlinda þeirra.
Yfirskrift CoastGIS 2018 var Loftslagsbreytingar og skipulagsmál og markmiðið var að fjalla um þær áskoranir sem upp hafa komið á undanförnum árum við að stjórna strandsvæðum með skilvirkum og sjálfbærum hætti.

Creative Power of the Westfjords 2018
Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða var málþing sem haldið var árið 2018. Markmið þess var að kanna sköpunarkraft Vestfjarða í íslenskum sögulegum bókmenntum og draga upp mynd af handritum og bókmenntaverkum frá miðöldum til nútíma sem eiga rætur að rekja til Ísafjarðardjúps.