Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um meistaranám. Ef þú átt í erfiðleikum með að útvega einhver þessara gagna skaltu hafa samband við kennslustjóra.
Athugið að innsendum gögnum er ekki skilað til umsækjenda.
Umsækjendur þurfa að skila inn einnar til tveggja blaðsíðna greinargerð þar sem þeir gera grein fyrir áhuga sínum á námi við Háskólasetur Vestfjarða. Í greinargerðinni skal sérstaklega fjalla um eftirfarandi atriði:
Hvernig hefur bakgrunnur þinn undirbúið þig fyrir meistaranámið? Lýstu því hvernig menntun þín og önnur reynsla hefur nýst þér sem undirbúningur fyrir námið. Ef grunnnám þitt er ekki á sviði sem tengist beint þeirri námsleið sem þú sækir um, skaltu útskýra hvernig önnur reynsla, svo sem starfsreynsla, sjálfboðastörf eða þátttaka í félagsstarfi, hefur undirbúið þig fyrir meistaranámið.
Hvers vegna hefur þú áhuga á þessari námsleið?
Hver eru framtíðaráform þín og hvernig mun meistaranámið hjálpa þér að ná markmiðum þínum?
Greinargerðin er mikilvægur hluti umsóknarferlisins og hjálpar Háskólasetri Vestfjarða að meta áhuga, hæfni og forsendur umsækjenda til námsins. Í sumum tilvikum kann Háskólasetrið einnig að óska eftir viðtali við umsækjendur til að fá nánari upplýsingar um umsókn þeirra.
Athugið að Háskólasetur Vestfjarða gerir ráð fyrir að öll umsóknargögn séu unnin af umsækjanda sjálfum. Umsóknargögn sem virðast hafa verið útbúin með aðstoð gervigreindar verða metin umsækjanda í óhag.
Skila þarf inn fullgerðri og uppfærðri ferilskrá á PDF-sniði.
Umsækjendur þurfa að leggja fram staðfest gögn um fyrra háskólanám sitt, þar sem fram koma allar námsleiðir sem þeir hafa stundað og einkunnir sem þeir hafa hlotið.
Hægt er að hlaða öllum gögnum upp í gegn um umsóknargátt en einnig er hægt að senda opinber frumrit í pósti til:
Háskólasetur Vestfjarða
Suðurgata 12
400 Ísafjörður
Ísland
Meðmælabréf
Umsækjendur þurfa að tilgreina tvo meðmælendur sem geta veitt upplýst mat á námslegri eða faglegri hæfni þeirra og hversu vel þeir eru í stakk búnir til að stunda þá námsleið sem sótt er um.
Æskilegt er að að minnsta kosti annar meðmælandinn hafi þekkt til umsækjanda í tengslum við fyrra nám.
Meðmæli verða að berast beint frá meðmælanda með tölvupósti á applications@uw.is. Háskólasetur Vestfjarða sér þá um að bæta meðmælunum við umsóknina.
Meðmælendur geta annaðhvort skrifað persónulegt meðmælabréf eða fyllt út þetta meðmælaeyðublað.