26.10.2026
Dagana 5.–16. október sátu nemendur Háskólaseturs Vestfjarða námskeiðið Bjargráð við hamförum (Coping with Disasters), undir leiðsögn Dr. Utu Reichardt. Á námskeiðinu var fjallað um hvernig einstaklingar, samfélög og stofnanir geta undirbúið sig fyrir hamfarir, brugðist við þeim og tekist á við afleiðingar þeirra. Sérstök áhersla var lögð á samfélagslega seiglu og þá þætti sem hafa áhrif á getu samfélaga til að takast á við áföll og ná sér eftir hamfarir.
16.10.2026
Meistaranemar við Háskólasetur Vestfjarða tóku þátt í Arctic Circle ráðstefnunni í Reykjavík dagana 8.–10. október sem hluta af námskeiðinu Stjórnskipulag á norðurslóðum sem kennt er af Dr. Romain Chuffart.
09.10.2026
Dagana 14. september til 2. október sátu nemendur í meistaranámi í Sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið People and the Sea: Systems Thinking for Coastal Communities (Fólkið og hafið: Kerfishugsun fyrir strandsamfélög), undir leiðsögn Dr. Eduard Nedelciu.
06.10.2026
Dagana 21. september til 2. október sátu nemendur í meistaranámi í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið Coastal and Marine Management: Theory and Tools, undir leiðsögn Dr. Fionu Beaty.
01.10.2026
Nú þegar fyrsti snjórinn er fallinn í fjöll er tímabært að búa sig undir veturinn. Í nýlegri grein eftir Matthias Kokorsch, rannsakanda við Háskólasetur Vestfjarða, er fjallað um hvernig fólk á Íslandi bregst við snjóflóðaviðvörunum og lokunum vega og hvaða áhrif slíkar viðvaranir hafa á daglegar ferðir og öryggi.