Norðurslóðir hlýna hraðar en flest önnur svæði heimsins. Samfélög á norðurslóðum finna nú þegar fyrir breytingum á borð við strandrof, þiðnun sífrera, gróðurelda, minnkandi hafís, breytt úrkomumynstur og tíðari öfgaveður. Þessar breytingar geta valdið augljósu efnahagslegu tjóni, til dæmis þegar vegir, byggingar eða aðrir innviðir verða fyrir skemmdum. Þær geta þó einnig leitt til tjóns sem mun erfiðara er að meta.
Hvað gerist þegar landslag breytist, hefðbundnir atvinnuhættir hverfa eða fólk glatar siðum, þekkingu og stöðum sem hafa haft mikla þýðingu fyrir samfélagið í margar kynslóðir? Slíkar breytingar eru oft skilgreindar sem ófjárhagslegt tap og tjón. Þar getur verið um að ræða glataðan menningararf, sjálfsmynd, staðartengsl, samfélagsleg tengsl, hefðbundna þekkingu og lífsgæði.
Í rannsóknarverkefninu Lost to Climate eru þessar síður sýnilegu afleiðingar loftslagsbreytinga rannsakaðar og leitast við að svara því hvernig samfélög á norðurslóðum geti brugðist við þeim á sanngjarnan og árangursríkan hátt. Aðlögun að loftslagsbreytingum getur dregið úr tjóni, en ekki er endilega hægt að vernda allt til frambúðar. Samfélög geta því staðið frammi fyrir erfiðum ákvörðunum um hvað eigi að varðveita, hverju sé hægt að laga að breyttum aðstæðum og hvað kunni að glatast að lokum.
Verkefnið leiðir saman vísindafólk og íbúa dreifbýlissamfélaga í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi, Færeyjum, Íslandi, Grænlandi, Kanada og Bandaríkjunum, þar á meðal nokkur samfélög frumbyggja. Í stað þess að rannsaka samfélögin eingöngu utan frá byggir Lost to Climate á sameiginlegri þekkingarsköpun. Vísindafólk vinnur náið með heimafólki með viðtölum, könnunum, vinnustofum, skapandi rannsóknaraðferðum og samtali við nærsamfélögin.
Íslenski hluti verkefnisins: Hvað ef sauðfjárbúskapur leggst af á tilteknum svæðum?
Íslenska rannsóknarteymið skipa Matthias Kokorsch og Jóhanna Gísladóttir, ásamt nokkrum meistaranemum sem munu vinna lokaverkefni sín í tengslum við rannsóknina.
Íslenski hluti rannsóknarinnar beinist að sauðfjárbúskap á Íslandi. Við fyrstu sýn virðist sauðfjárbúskapur ef til vill ekki augljóst dæmi um tap og tjón af völdum loftslagsbreytinga. Loftslagsbreytingar munu ekki einar og sér leiða til þess að sauðfjárbúskapur leggist af. Bændasamfélög finna þó nú þegar fyrir breyttum umhverfisaðstæðum og líklegt er að álagið aukist á komandi árum. Óstöðugra veðurfar, breytt úrkomumynstur, öfgaveður og breytt hætta á skriðuföllum og snjóflóðum geta haft áhrif á bújarðir, innviði, aðgengi að landi og daglegt líf í landbúnaðarsamfélögum.
Við viljum því ekki aðeins kanna hvort sauðfjárbúskapur verði áfram fjárhagslega sjálfbær, heldur einnig varpa ljósi á stærri spurningu: Hvað myndi glatast ef sauðfjárbúskapur legðist af í ákveðnum landshlutum?
Svarið felur mögulega í sér mun meira en tap á störfum eða samdrátt í landbúnaðarframleiðslu. Sauðfjárbúskapur er nátengdur landslagi, fjölskyldusögum, staðbundinni þekkingu, hefðum, félagslegum tengslum, matarmenningu og hugmyndum okkar um íslenskt dreifbýli. Við viljum öðlast betri skilning á því hvaða þýðingu þessi tengsl hafa fyrir bændur, dreifbýlissamfélög og íslenskt samfélag í heild.
Á árunum 2026 og 2027 munum við framkvæma umfangsmikla könnun meðal fólks í landbúnaðarsamfélögum, auk þess að taka viðtöl og vinna rannsóknarverkefni með meistaranemum. Með því að ræða beint við fólk sem tengist sauðfjárbúskap vonumst við til að öðlast betri skilning á því hvaða verðmæti fólk telur mikilvægust, hvaða breytingar það hefur þegar upplifað og hvað það telur brýnast að varðveita fyrir komandi kynslóðir.