Nemendur í námskeiðinu Stjórnskipulag á norðurslóðum taka þátt í Arctic Circle ráðstefnunni

Meistaranemar við Háskólasetur Vestfjarða tóku þátt í Arctic Circle ráðstefnunni í Reykjavík dagana 8.–10. október sem hluta af námskeiðinu Stjórnskipulag á norðurslóðum sem kennt er af Dr. Romain Chuffart.

Heildarmyndin skoðuð: Kerfishugsun og áskoranir strandsamfélaga

Dagana 14. september til 2. október sátu nemendur í meistaranámi í Sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið People and the Sea: Systems Thinking for Coastal Communities (Fólkið og hafið: Kerfishugsun fyrir strandsamfélög), undir leiðsögn Dr. Eduard Nedelciu.

Fræði og verkfæri í haf- og strandsvæðastjórnun

Dagana 21. september til 2. október sátu nemendur í meistaranámi í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið Coastal and Marine Management: Theory and Tools, undir leiðsögn Dr. Fionu Beaty.

Ný rannsókn skoðar viðbrögð við snjóflóðahættu og vegalokunum

Nú þegar fyrsti snjórinn er fallinn í fjöll er tímabært að búa sig undir veturinn. Í nýlegri grein eftir Matthias Kokorsch, rannsakanda við Háskólasetur Vestfjarða, er fjallað um hvernig fólk á Íslandi bregst við snjóflóðaviðvörunum og lokunum vega og hvaða áhrif slíkar viðvaranir hafa á daglegar ferðir og öryggi.

Háskólasetur Vestfjarða hlýtur viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun

Háskólasetur Vestfjarða hlaut á laugardaginn viðurkenningu Vísindavöku Rannís 2026 fyrir vísindamiðlun. Catherine Chambers, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða, tók við viðurkenningunni úr hendi Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Rannsakendur Lost to Climate fylgjast með réttum á Ströndum

Rannsakendur í alþjóðlega rannsóknarverkefninu Lost to Climate fylgdust með árlegum réttum í Kjósárrétt á Ströndum síðastliðinn laugardag.

Nýr rannsóknarpistill: Endurreisn í litlum og afskekktum norrænum samfélögum á norðurslóðum

Nýr rannsóknarpistill eftir Matthias Kokorsch, Freju Kidal og Jóhönnu Gísladóttur kynnir hagnýtan gátlista fyrir mat á Build Back Better (BBB), sem sérstaklega er sniðinn að litlum og afskekktum samfélögum á Norðurlöndum og norðurslóðum.

Áskoranir og tækifæri strandsamfélaga á Vestfjörðum til umfjöllunar í nýju námskeiði

Nýlega lauk við Háskólasetur Vestfjarða nýju kjarnanámskeiði í meistaranáminu í Sjávarbyggðafræði, Inngangur að sjálfbærum sjávarbyggðum. Vestfirðir voru nýttir sem meginviðfangsefni námskeiðsins og í tveggja vikna lotu kynntu meistaranemar sér flókið samspil efnahagslegra og pólitískra innviða samfélaga, manngerðra innviða og umhverfisins sem þau byggja á.

Langar þig að bæta við þig þekkingu?

Það er aldrei of seint að bæta við sig þekkingu. Hvort sem þig langar að efla færni sem nýtist þér í núverandi starfi, undirbúa þig fyrir nýjan starfsvettvang eða einfaldlega sökkva þér niður í áhugavert viðfangsefni, þá gætu stök meistaranámskeið við Háskólasetur Vestfjarða verið eitthvað fyrir þig.

Vistfræði haf- og strandsvæða í fullum gangi við Háskólasetur Vestfjarða

Nemendur við Háskólasetur Vestfjarða kafa þessa dagana ofan í fjölbreyttan og heillandi heim vistkerfa hafsins í námskeiðinu Vistfræði haf- og strandsvæða, sem stendur yfir frá 31. ágúst til 18. september.