Nú þegar fyrsti snjórinn er fallinn í fjöll er tímabært að búa sig undir veturinn. Í nýlegri grein eftir Matthias Kokorsch, rannsakanda við Háskólasetur Vestfjarða, sem ber titilinn Balancing Safety and Mobility: Experience with Iceland’s SMS Avalanche Warning System, er fjallað um hvernig fólk á Íslandi bregst við snjóflóðaviðvörunum og lokunum vega og hvaða áhrif slíkar viðvaranir hafa á daglegar ferðir og öryggi.
Rannsóknin byggir á könnun meðal 545 notenda SMS-viðvörunarkerfis Vegagerðarinnar vegna snjóflóðahættu. Niðurstöðurnar sýna að almennt ríkir mikið traust til ákvarðana um lokun vega og víðtækur stuðningur er við að viðvaranir séu gefnar út í varúðarskyni. Jafnframt kemur fram að búseta á afskekktum svæðum getur gert fólki erfiðara fyrir að bregðast við viðvörunum. Íbúar á Vestfjörðum voru líklegri en aðrir til að halda áfram ferðalögum þegar snjóflóðahætta var aukin, sem endurspeglar hversu háðir þeir eru fáum og mikilvægum samgönguleiðum.
Í greininni er lögð áhersla á mikilvægi skýrra og aðgengilegra viðvarana sem taka mið af aðstæðum og veruleika fólks í afskekktum byggðum.
Rannsóknin bendir einnig á ýmsar hagnýtar leiðir til að bæta viðvörunarkerfið. Meðal tillagna eru skýrari og auðskiljanlegri viðvörunarskilaboð, betri samræming milli ólíkra upplýsingamiðla og að viðvaranir verði aðgengilegar fleirum en þeim sem þegar eru skráðir í SMS-þjónustuna. Sérstaklega þurfi að huga að yngri ökumönnum, ferðamönnum og nýjum íbúum, meðal annars með upplýsingum á fleiri tungumálum.
Til lengri tíma litið er lagt til að kerfið verði þróað áfram frá því að snúa fyrst og fremst að snjóflóðum yfir í víðtækara viðvörunarkerfi vegna loftslagstengdrar náttúruvár sem getur haft áhrif á vegakerfi Íslands.