Dagana 14. september til 2. október sátu nemendur í meistaranámi í Sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið People and the Sea: Systems Thinking for Coastal Communities (Fólkið og hafið: Kerfishugsun fyrir strandsamfélög), undir leiðsögn Dr. Eduard Nedelciu.
Á námskeiðinu kynntust nemendur kerfishugsun sem aðferð til að skilja þær flóknu sjálfbærniáskoranir sem strandsamfélög standa frammi fyrir. Þessar áskoranir geta verið allt frá hnattrænum viðfangsefnum á borð við loftslagsbreytingar og súrnun sjávar til staðbundnari málefna, svo sem hnignunar líffræðilegrar fjölbreytni, orkuöryggis, samgangna og tenginga afskekktra byggðarlaga og breytinga á samfélögum vegna hækkandi húsnæðisverðs og breyttrar íbúasamsetningar.
Dr. Eduard Nedelciu segir svo frá reynslu sinni af kennslu námskeiðsins við Háskólasetur Vestfjarða:

Í stað þess að skoða einstök vandamál einangrað hvetur kerfishugsun nemendur til að horfa á víðara samhengi og tengsl félagsl
egra, umhverfislegra og efnahagslegra þátta. Með þessari nálgun könnuðu nemendur hvernig ólíkir þættir kerfis hafa áhrif hver á annan, hvernig breytingar geta haft langvarandi og stundum ófyrirséðar afleiðingar og hvar inngrip geta skilað mestum árangri.
Á námskeiðinu kynntust nemendur fjölbreyttum verkfærum kerfishugsunar, meðal annars línuritum sem sýna þróun yfir tíma, endurgjafarlykkjum, orsakatengslamyndum og áhrifaríkum inngripspunktum. Vettvangsferðir gáfu þeim tækifæri til að beita þessum aðferðum við raunverulegar aðstæður á Vestfjörðum, auk þess sem áskoranir í byggðaþróun sem ræddar voru í kennslustundum nýttust sem dæmi til greiningar.
Eduard leggur sérstaka áherslu á mikilvægi vettvangsferðanna:
Námskeiðið eflir hæfni nemenda til að greina flókin viðfangsefni byggðaþróunar út frá ólíkum sjónarhornum og greina á milli línulegra og kerfisbundinna nálgana við lausn vandamála. Það veitir þeim jafnframt hagnýt verkfæri til að skoða hvernig strandsamfélög geta brugðist við breytingum með auknum sveigjanleika og seiglu.
Dr. Eduard Nedelciu er með doktorsgráðu í umhverfis- og náttúruauðlindafræðum frá Háskóla Íslands og Stokkhólmsháskóla. Rannsóknir hans beinast að sjálfbærri stjórnun náttúruauðlinda og efnahagslegum umbreytingum í tengslum við sjálfbæra þróun. Hann er nú tengdur rannsóknarhópnum System Dynamics Group við Háskólann í Bergen og kennir jafnframt kerfishugsun og kvika kerfislíkanagerð við Háskóla Íslands.