09.11.2026
Dagana 26. október til 6. nóvember sátu nemendur við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið Eðlisræn ferli strandarinnar (Physical Processes of Coastal Environments), undir leiðsögn Dr. Jana Cox. Á námskeiðinu var fjallað um náttúruöflin sem móta strandlengjur og hafsvæði, auk þeirra áskorana sem fylgja stjórnun þessara síbreytilegu svæða í ljósi loftslagsbreytinga og mannlegra umsvifa.
06.11.2026
Þriðjudaginn 1. desember næstkomandi verður haldin netkynning á meistaranámsleiðum Háskólaseturs Vestfjarða í sjávarbyggðafræði og haf- og strandsvæðastjórnun.
03.11.2026
Dagana 26. október til 13. nóvember sækja nemendur Háskólaseturs Vestfjarða námskeiðið Sjálfbær svæðishagkerfi (Sustainable Local Economies), undir leiðsögn dr. Emils Sandström frá sænska landbúnaðarháskólanum (Swedish University of Agricultural Sciences, SLU).
26.10.2026
Dagana 5.–16. október sátu nemendur Háskólaseturs Vestfjarða námskeiðið Bjargráð við hamförum (Coping with Disasters), undir leiðsögn Dr. Utu Reichardt. Á námskeiðinu var fjallað um hvernig einstaklingar, samfélög og stofnanir geta undirbúið sig fyrir hamfarir, brugðist við þeim og tekist á við afleiðingar þeirra. Sérstök áhersla var lögð á samfélagslega seiglu og þá þætti sem hafa áhrif á getu samfélaga til að takast á við áföll og ná sér eftir hamfarir.
16.10.2026
Meistaranemar við Háskólasetur Vestfjarða tóku þátt í Arctic Circle ráðstefnunni í Reykjavík dagana 8.–10. október sem hluta af námskeiðinu Stjórnskipulag á norðurslóðum sem kennt er af Dr. Romain Chuffart.
09.10.2026
Dagana 14. september til 2. október sátu nemendur í meistaranámi í Sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið People and the Sea: Systems Thinking for Coastal Communities (Fólkið og hafið: Kerfishugsun fyrir strandsamfélög), undir leiðsögn Dr. Eduard Nedelciu.
06.10.2026
Dagana 21. september til 2. október sátu nemendur í meistaranámi í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið Coastal and Marine Management: Theory and Tools, undir leiðsögn Dr. Fionu Beaty.
01.10.2026
Nú þegar fyrsti snjórinn er fallinn í fjöll er tímabært að búa sig undir veturinn. Í nýlegri grein eftir Matthias Kokorsch, rannsakanda við Háskólasetur Vestfjarða, er fjallað um hvernig fólk á Íslandi bregst við snjóflóðaviðvörunum og lokunum vega og hvaða áhrif slíkar viðvaranir hafa á daglegar ferðir og öryggi.
29.09.2026
Háskólasetur Vestfjarða hlaut á laugardaginn viðurkenningu Vísindavöku Rannís 2026 fyrir vísindamiðlun. Catherine Chambers, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða, tók við viðurkenningunni úr hendi Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
21.09.2026
Rannsakendur í alþjóðlega rannsóknarverkefninu Lost to Climate fylgdust með árlegum réttum í Kjósárrétt á Ströndum síðastliðinn laugardag.