Biðlar til kennara um að taka þátt í könnun um haflæsi

Una Lilja, meistaranemi á öðru ári hjá Háskólasetri Vestfjarða í Haf- og Strandsvæðastjórnun, vinnur nú að rannsókn á því hvernig skólakerfið undirbýr einstaklinga til að taka ákvarðanir sem styðja við heilbrigt haf. Leiðbeinandi hennar er Dr Catherine Chambers, nýr forstöðumaður Háskólaseturs sem hóf störf 1 apríl á þessu ári.

Í rannsókn sinni skoðar Una svokallað haflæsi, sem snýst um skilning á tengslum mannfólks og hafs en það gegnir einnig lykilhlutverki í að efla meðvitund um umhverfismál, sjálfbærni og ábyrgð í nýtingu auðlinda hafsins. Þetta hugtak hefur fengið aukna athygli á undanförnum árum en það á sérstaklega vel við á strandsvæðum þar sem hafið er stór hluti af daglegu lífi.

Una mun kanna hvernig kennarar nota hafið og ströndina í kennslu og hvernig haflæsi fléttist inn í námsgreinar á öllum skólastigum. Hún biður því alla kennara að taka þátt í könnuninni sinni sem tekur aðeins um 2-5 mínútur að svara og verður opin í takmarkaðan tíma. Einnig er fólk hvatt til þess að deila könnuninni áfram til kennara sem þau þekkja.

Hlekk á könnunina má finna hér: Könnun um haflæsi á Íslandi - Háskólasetur Vestfjarða