Biðlar til kennara um að taka þátt í könnun um haflæsi

Una Lilja, meistaranemi á öðru ári hjá Háskólasetri Vestfjarða í Haf- og Strandsvæðastjórnun, vinnur nú að rannsókn á því hvernig skólakerfið undirbýr einstaklinga til að taka ákvarðanir sem styðja við heilbrigt haf. Leiðbeinandi hennar er Dr Catherine Chambers, nýr forstöðumaður Háskólaseturs sem hóf störf 1 apríl á þessu ári. Í rannsókn sinni skoðar Una svokallað haflæsi, sem snýst um skilning á tengslum mannfólks og hafs en það gegnir einnig lykilhlutverki í að efla meðvitund um umhverfismál, sjálfbærni og ábyrgð í nýtingu auðlinda hafsins. Þetta hugtak hefur fengið aukna athygli á undanförnum árum en það á sérstaklega vel við á strandsvæðum þar sem hafið er stór hluti af daglegu lífi. Una mun kanna hvernig kennarar nota hafið og ströndina í kennslu og hvernig haflæsi fléttist inn í námsgreinar á öllum skólastigum. Hún biður því alla kennara að taka þátt í könnuninni sinni sem tekur aðeins um 2-5 mínútur að svara og verður opin í takmarkaðan tíma. Einnig er fólk hvatt til þess að deila könnuninni áfram til kennara sem þau þekkja. Hlekk á könnunina má finna hér: Könnun um haflæsi á Íslandi - Háskólasetur Vestfjarða

Reflecting on the course Aquaculture, Environment and Society: Exploring the many facets of aquaculture

Over the past weeks, students at the University Centre of the Westfjords have been taking a closer look at one of today’s most talked-about topics in coastal development through the course Aquaculture, Environment and Society.

Upphaf verkefnis: COLAB

Það er okkur sönn ánægja að kynna COLAB: Strandrannsóknarstofur sem tengja fólk og náttúru, alþjóðlegt verkefni sem styrkt er af áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um farsæla framtíð. COLAB tengir saman samstarfsaðila á Íslandi, í Póllandi og Litháen sem þróa í sameiningu hagnýtar aðferðir til að efla strandsamfélög til að byggja upp staðbundin hagkerfi með mikla seiglu, sem byggja á náttúrulegum og lífrænum auðlindum strandarinnar. Verkefnið leggur áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu, þekkingu samfélagsins og náttúruvænar aðferðir sem styrkja bæði vistkerfi og lífsviðurværi.

Páskaopnun í Háskólasetri Vestfjarða

Háskólasetur Vestfjarða verður lokað hluta páskanna. Húsið verður lokað föstudaginn langa, 3. apríl, og laugardaginn 4. apríl. Inngangurinn frá Suðurgötu verður læstur og lyklaspjöld ekki virk á meðan. Í neyðartilvikum má hafa samband í síma 844 3148.

Skipulag fyrir loftslagsbreytingar á strandsvæðum kennt við Háskólasetur Vestfjarða

Dagana 16. mars til 1. apríl er námskeiðið Skipulag til að takast á við loftslagsbreytingar í strandhéruðum: aðlögun og mótvægisaðgerðir kennt við Háskólasetur Vestfjarða. Þar kafa nemendur ofan í eitt brýnasta viðfangsefni samtímans: hvernig strandsamfélög geta brugðist við loftslagsbreytingum og byggt upp aukna seiglu til framtíðar.

Námskeiðið Sjávareldi, umhverfi og samfélag í fullum gangi hjá Háskólasetri Vestfjarða

Dagana 16. mars til 1. apríl stendur yfir námskeiðið Sjávareldi, umhverfi og samfélag hjá Háskólasetri Vestfjarða.

Námskeið í skipulagi hafsvæða við Háskólasetur Vestfjarða

Dagana 2.–13. mars stendur yfir námskeiðið Hafskipulag við Háskólasetur Vestfjarða.

Námskeið um hamfarir og seiglu hafið í Háskólasetri Vestfjarða

Námskeiðið Bjargráð við hamförum hófst í Háskólasetri Vestfjarða 2. mars og stendur til 13. mars. Eins og heiti námskeiðsins gefur til kynna er þar fjallað um viðbrögð við hamförum, hvernig hamfarir koma til og hvað það er sem ræður því hvernig fólk og samfélög takast á við áföll og erfiðleika.

Horft til framtíðar í strandsamfélögum á Norðurslóðum

Dagana 9.–27. febrúar fer fram við Háskólasetur Vestfjarða námskeiðið Outlook to the Future: Coastal Arctic Scenarios.

Styrkir auglýstir til fræðadvalar í Grímshúsi á Ísafirði

Nú hefur aftur verið opnað fyrir umsóknir um dvalarstyrki í Grímshúsi á Ísafirði. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026, og er umsóknargáttin aðgengileg á vefsíðu Grímsson-félaga.