08.06.2026
Hafið þið tekið eftir mikilli krabbatengdri list í bænum undanfarið? Það er vegna HV! Sem hluti af listahátíðinni Púkinn skipulögðum við verkefni í samstarfi við menningarhúsið Edinborg, þar sem börn settu upp krabbagildrur til að læra um mismunandi dýr í hafinu í kringum okkur.
05.06.2026
Háskólasetrið býður öllum nemum sem staðsettir eru á Vestfjörðum og eru að útskrifast frá háskóla (ekki aðeins þeim sem útskrifast frá Háskólasetri Vestfjarða) að taka þátt í háskólahátíðinni á Hrafnseyri 17. júní.
05.06.2026
Mjög árangursrík ráðstefna UArctic (Háskólans á Norðurslóðum) fór fram í síðustu viku þar sem 1.400 þátttakendur frá öllum heimshornum hittust í Færeyjum til að ræða og miðla upplýsingum um þverfagleg efni tengd norðurslóðum. UArctic er net háskóla á norðurslóðum og HV hefur verið meðlimur frá upphafi. Í gegnum UArctic njóta nemendur okkar tækifæra til skiptináms við aðrar stofnanir, og starfsfólk okkar og kennarar vinna saman að kennaraskiptum og rannsóknum.
01.06.2026
Dagana 11.–22. maí rýndu nemendur við Háskólasetur Vestfjarða í ferðaþjónustu, tómstundir og daglegt líf í litlum strandsamfélögum í námskeiðinu Coastal Communities in an Era of Leisure and Tourism.
26.05.2026
Á Háskólahátíð fögnum við með þeim nemendum sem útskrifast úr meistarnámi hjá Háskólasetri, sem og fjarnemum af Vestfjörðum.
22.05.2026
Hæ Hæ, we are Theresa and Julie, two students from southern Germany. We are studying Public Administration at the University of Applied Sciences in Kehl. As part of our studies, we are currently doing a three-month internship at the University Centre of the Westfjords in Ísafjörður.
19.05.2026
Aðalfundur Háskólaseturs Vestfjarða verður haldinn n.k. föstudag, 22.05.2025 kl. 11:30. Fundurinn er opinn gestum og á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
13.05.2026
Tíminn flýgur – eins og þegar börnin stækka of hratt, þegar maður lendir í kanínuholu á netinu, eða þegar maður er nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða. Það er ótrúlegt að einn mánuður sé liðinn síðan ég tók við 1. apríl. Það hefur verið margt að gera, mörg spennandi verkefni, bæði stór og smá: til dæmis að læra hversu langan tíma það tekur að breyta lykilorðum, eða ákveða hvernig nákvæmlega maður á að erfa 20 ár af skrám, upplýsingum og reynslu. Ég er mjög þakklát fyrir allt það góða fólk í kringum mig sem hefur hjálpað mér á þessum umskiptatíma.
08.05.2026
Við erum afar ánægð að segja frá nýrri grein sem okkur er mjög hugleikin. Greinin ber heitið Higher Education as Coastal Community Development: Lessons Learned From the University Centre of the Westfjords, Iceland og birtist í tímaritinu Ocean and Society. Þar er litið til 20 ára reynslu Háskólaseturs Vestfjarða sem háskólastofnunar í dreifðu strandsamfélagi.
05.05.2026
Það er okkur mikil ánægja að kynna nýtt og spennandi rannsóknatengt meistaranám sem boðið er upp á af Háskólanum á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólasetri Vestfjarða, í samvinnu við Matís, Hafrannsóknastofnun og Náttúruminjasafn Íslands.