Dagana 16. mars til 1. apríl er námskeiðið Skipulag til að takast á við loftslagsbreytingar í strandhéruðum: aðlögun og mótvægisaðgerðir kennt við Háskólasetur Vestfjarða. Þar kafa nemendur ofan í eitt brýnasta viðfangsefni samtímans: hvernig strandsamfélög geta brugðist við loftslagsbreytingum og byggt upp aukna seiglu til framtíðar.
Í námskeiðinu er fjallað um helstu áhrif sem loftslagsbreytingar geta haft á strandsvæði samkvæmt mismunandi sviðsmyndum UNFCCC. Nemendur kynnast jafnframt fjölbreyttum leiðum sem samfélög geta farið til að aðlagast breyttum aðstæðum og undirbúa sig fyrir framtíðina.
Meðal þess sem tekið er fyrir er samfélagsmiðuð aðlögun, uppbygging þekkingar og getu, harðar og mjúkar varnir og efnahagslegir hvatar. Einnig er sjónum beint að vísindalegum grunni og samfélagslegu samhengi ýmissa mótvægisaðgerða, svo sem bláum kolefnislausnum, veðurverkfræði og tækni til bindingar og geymslu kolefnis.
Á námskeiðinu er ekki aðeins horft til tæknilegra lausna heldur eru nemendur einnig hvattir til að velta fyrir sér stærri spurningum um seiglu, réttlæti og jöfnuð, bæði innan kynslóða og milli þeirra, þegar kemur að viðbrögðum við loftslagsbreytingum af mannavöldum.
Kennari námskeiðsins er Dr. Patricia Manuel, prófessor í skipulagsfræðum við Dalhousie University í Halifax í Nova Scotia í Kanada. Hún er landfræðingur og umhverfisskipulagsfræðingur og hefur kennt og rannsakað á sviði samfélags- og umhverfisskipulags, meðal annars með áherslu á aðlögun að loftslagsbreytingum, skipulag votlendis og vatnasviða og skipulag hafsvæða.
Patricia lýsir tengslum sínum við Ísafjörð og Háskólasetrið á hlýjan hátt:
Að námskeiði loknu geta nemendur meðal annars útskýrt líkleg áhrif loftslagsbreytinga á strandsvæði, rætt kosti og galla mismunandi aðlögunarleiða, lagt mat á virkni og sjálfbærni mótvægisaðgerða og greint hlutverk áhættu, viðkvæmni, jöfnuðar og réttlætis við mótun svæðisbundinna áætlana.
Námskeiðið sameinar umhverfisfræði, skipulagsfræði og samfélagslega sýn á lifandi og hagnýtan hátt og veitir nemendum mikilvæga innsýn í áskoranir og tækifæri strandsvæða í breyttu loftslagi.
Lestu meira um námskeiðið hér.
Við minnum á að öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur Vestfjarða eru kennt í 1-3 vikna lotum og eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Hafir þú áhuga á að sækja stök námskeið hjá Háskólasetri getur þú kynnt þér kennsluskrána okkar og sent inn umsókn um stakt námskeið.