Öllum vestfirskum háskólanemum býðst að útskrifast á Hrafnseyri 17. júní!

Háskólasetrið býður öllum nemum sem staðsettir eru á Vestfjörðum og eru að útskrifast frá háskóla (ekki aðeins þeim sem útskrifast frá Háskólasetri Vestfjarða) að taka þátt í háskólahátíðinni á Hrafnseyri 17. júní.

Ef þú kemst ekki á útskriftarhátíðina í þínum skóla er þetta kjörið tækifæri til að fagna útskriftinni. Hægt er að fá prófskírteini afhent í athöfninni.

Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is ef þið hafið áhuga á að taka þátt í Háskólahátíðinni á Hrafnseyri.

Hægt er að tryggja sér sæti í rútu sem fer frá Ísafirði kl. 9:00. Rútuferðin er ókeypis og öll eru velkomin á meðan sæti eru laus.