Nýtt skólaár er hafið við Háskólasetur Vestfjarða og með ánægju bjóðum við nýjan hóp nemenda velkominn til Ísafjarðar og í Háskólasetrið.
Önnin hófst með nýnemadögum föstudaginn 21. ágúst og laugardaginn 22. ágúst. Þar gafst nýnemum tækifæri til að koma sér fyrir, kynnast hverju öðru og Háskólasetrinu áður en kennsla hófst.
Á föstudeginum buðu Catherine Chambers, forstöðumaður Háskólasetursins, og Astrid Fehling, framkvæmdastjóri, nemendur velkomna og kynntu fyrir þeim Háskólasetrið og það sem fram undan er á önninni. Því næst tóku við fagstjórarnir R. Morgan Greene og Dr. Brack Hale, sem kynntu meistaranámið og hlutverk sín innan Háskólasetursins.
Nemendur fengu síðan tækifæri til að kynna sig og byrja að kynnast samnemendum sínum. Eftir formlegar kynningar var haldið út í leiki og ýmiskonar hópefli áður en boðið var upp á pizzu í hádeginu. Þetta var afslappaður og skemmtilegur upphafsdagur annarinnar og gott tækifæri fyrir nýja nemendahópinn til að kynnast og mynda tengsl.

Nýnemadögum var haldið áfram á laugardeginum þegar farið var yfir ýmis hagnýt atriði sem tengjast námi og búsetu á Ísafirði og því sem nemendur mega eiga von á á meðan á dvöl þeirra við Háskólasetrið stendur.
Mánudaginn 24. ágúst hófst svo hinn akademíski hluti annarinnar formlega þegar nemendur hófu námskeið í hagnýtum skrifum undir leiðsögn fagstjóranna Dr. Brack Hale og R. Morgan Greene. Námskeiðið er kennt í formi málstofuraðar yfir önnina og er ætlað að kynna fyrir nemendum helstu þætti akademískra vinnubragða í framhaldsnámi.
Í málstofunum verður meðal annars fjallað um akademísk skrif, heimildayfirlit, ritun útdrátta, ritrýni og gagnrýna hugsun, auk framsetningar gagna. Það er því óhætt að segja að nemendur hafi í nógu að snúast strax í upphafi annarinnar.
Það er alltaf sérstök ánægja þegar nýr nemendahópur kemur til Háskólasetursins og húsið fyllist á ný af nemendum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við hlökkum til að kynnast nýju nemendunum betur á komandi mánuðum og bjóðum þau hjartanlega velkomin í Háskólasetur Vestfjarða, til Ísafjarðar og á Vestfirði.
Við óskum þeim öllum góðs gengis í náminu og vonum að þau njóti þess sem tíminn við Háskólasetrið hefur upp á að bjóða.