Það er okkur mikil ánægja að kynna nýtt og spennandi rannsóknatengt meistaranám sem boðið er upp á af Háskólanum á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólasetri Vestfjarða, í samvinnu við Matís, Hafrannsóknastofnun og Náttúruminjasafn Íslands. Námið heitir „Sjálfbær framleiðsla í lagareldi“ (e: Sustainable Production of Aquaculture, eða SPA) og er 120 ECTS MS gráða, kennd á ensku, sem leggur áherslu á þver- og fjölfaglega nálgun á sjálfbæra framleiðslu í lagareldi.
Námið sameinar ítarlega þekkingu á líffræði og framleiðslutækni, samfélagslegum þáttum með vísindalegri nálgun og hagnýtri færni sem undirbýr nemendur fyrir störf í iðnaði, rannsóknar- og þróunarverkefnum, eða áframhaldandi doktorsnám. Kennsla fer fram í blönduðu námsfyrirkomulagi, með stað- og fjarnámi, sem auðveldar þátttöku samhliða starfi.
Hægt er að finna fleiri upplýsingar og sækja um á vefsíðu Háskólans á Hólum.