Námskeiðið Sjávareldi, umhverfi og samfélag í fullum gangi hjá Háskólasetri Vestfjarða

Dagana 16. mars til 1. apríl stendur yfir námskeiðið Sjávareldi, umhverfi og samfélag hjá Háskólasetri Vestfjarða.

Á námskeiðinu kynnast nemendur samspili fiskeldis, umhverfis og samfélags. Fjallað er um ólík eldiskerfi, framleiðsluaðferðir og kynbótastarf, en jafnframt er sjónum beint að þeim vistfræðilegu lögmálum og umhverfisþáttum sem móta fiskeldi í framkvæmd.

Megináhersla námskeiðsins er á umhverfishlið fiskeldis. Þar eru meðal annars teknar fyrir áskoranir sem tengjast fóðurhráefnum, valkostir í þróun fiskafóðurs og samþættar fjölþrepa eldislausnir, svokallað IMTA (Integrated Multitrophic Aquaculture). Jafnframt er skoðað hvernig fiskeldi getur haft áhrif á samfélög, bæði í nærumhverfi og í víðara byggðalegu samhengi.

Vettvangsferðir eru mikilvægur hluti námskeiðsins, en þær gefa nemendum tækifæri til að tengja fræðin við raunveruleikann. Á námskeiðinu verða ýmis fyrirtæki á Vestfjörðum heimsótt, meðal annars Hampiðjan á Ísafirði, Sjótækni og Arctic Smolt á Tálknafirði og laxasláturhúsið Drimla í Bolungarvík.

Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta borið saman mismunandi eldiskerfi og framleiðsluaðferðir, þekkt helstu áskoranir sem fylgja fiskeldi, lýst þeim þáttum í eldiskerfum sem tengjast umhverfinu og rætt reglur, umhverfisvöktun og samfélagsleg áhrif fiskeldis.

Kennarar námskeiðsins eru Dr. Matthias Kokorsch og Dr. Peter Krost. Matthias hefur sérhæft sig í byggðaþróun, seiglu samfélaga, auðlindastjórnun og samfélagsbreytingum, með sérstakan áhuga á dreifbýlum og afskekktum svæðum. Peter er sjávarlíffræðingur með víðtæka reynslu af fiskeldi, mati á umhverfisáhrifum og þróun sjálfbærra lausna í hafinu, þar á meðal þörungarækt og IMTA-nálgunum. Saman færa þeir námskeiðinu bæði sterka umhverfislega og samfélagslega sýn.

 

Lestu meira um námskeiðið hér.

Við minnum á að öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur Vestfjarða eru kennt í 1-3 vikna lotum og eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Hafir þú áhuga á að sækja stök námskeið hjá Háskólasetri getur þú kynnt þér kennsluskrána okkar og sent inn umsókn um stakt námskeið.