Námskeiðið Bjargráð við hamförum hófst í Háskólasetri Vestfjarða 2. mars og stendur til 13. mars. Eins og heiti námskeiðsins gefur til kynna er þar fjallað um viðbrögð við hamförum, hvernig hamfarir koma til og hvað það er sem ræður því hvernig fólk og samfélög takast á við áföll og erfiðleika.
Nemendur fá kynningu á helstu grunnhugtökum hamfaraáhættustjórnunar og kynnast því hvernig mismunandi þættir hafa áhrif á seiglu samfélaga, það er hæfni þeirra til að jafna sig og ná fótfestu á ný eftir alvarlega atburði. Námskeiðið byggir á þverfaglegri nálgun og dregur saman sjónarhorn úr jarðvísindum, umhverfisfræðum, félagsfræði, heilbrigðisvísindum, sálfræði og menningarfræðum.
Kennslan er fjölbreytt og lifandi. Nemendur vinna með dæmisögur og hópverkefni og styðjast auk þess við fjölbreytt efni á borð við hlaðvörp, heimildamyndir og listaverk. Einnig verður kvikmyndaklúbbur tengdur hamförum og farið í vettvangsferð.
Í námskeiðinu er meðal annars fjallað um vöktun, snemmviðvaranir, skipulag og æfingar sem leiðir til að draga úr áhrifum náttúruvár. Jafnframt er sjónum beint að því sem tekur við eftir hamfarir, þar á meðal mikilvægi sálrænnar skyndihjálpar, samskipta, fjölmiðla, lista og andlegra þátta í því að vinna úr erfiðleikum, sorg og áföllum.
Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta útskýrt helstu hugtök og ferli í hamfarastjórnun, metið hvaða þættir gera samfélög viðkvæm fyrir vá og rætt með gagnrýnum hætti um bjargráð og þá þætti sem stuðla að seiglu á mismunandi stigum samfélagsins. Þeir fá einnig þjálfun í að móta samskiptastefnu fyrir neyðarástand og setja fram hugmynd að viðbragðsáætlun sem styður samfélag eftir hamfarir.
Kennari námskeiðsins er Dr. Uta Reichardt, nýdoktor við Sjálfbærnistofnun HÍ. Í rannsóknum sínum skoðar hún samspil vísinda og lista og nálgast sjálfbæra þróun út frá sjónarhorni hamfaraáhættuminnkunar. Hún hefur sérstaklega beint sjónum að hlutverki lista og hönnunar í viðbúnaði, neyðaraðstoð og endurreisn eftir hamfarir.
Lestu meira um námskeiðið hér.
Við minnum á að öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur Vestfjarða eru opin þátttakendum jafnt frá háskólum sem atvinnulífi. Hafir þú áhuga á að sækja stök námskeið hjá Háskólasetri getur þú kynnt þér kennsluskrána okkar og sent inn umsókn um stakt námskeið.