Langar þig að bæta við þig þekkingu?

Það er aldrei of seint að bæta við sig þekkingu. Hvort sem þig langar að efla færni sem nýtist þér í núverandi starfi, undirbúa þig fyrir nýjan starfsvettvang eða einfaldlega sökkva þér niður í áhugavert viðfangsefni, þá gætu stök meistaranámskeið við Háskólasetur Vestfjarða verið eitthvað fyrir þig.

Háskólasetur Vestfjarða býður einstaklinga úr samfélaginu velkomna í nám og öll meistaranámskeið Háskólasetursins eru opin fólki af vinnumarkaði sem uppfyllir inntökuskilyrði.

Kannski langar þig að læra meira um mengun sjávar, úrgangsstjórnun, loftslagsbreytingar, skipulagsmál eða sjálfbæra nýtingu auðlinda? Eða kannski sérðu námskeið í kennsluskránni sem tengist beint þínu starfi og gæti gefið þér ný verkfæri og ferska sýn.

Þú þarft ekki að skrá þig í heilt meistaranám til að taka þátt.

Alþjóðlegt nám

Námskeiðin eru hluti af tveimur alþjóðlegum og þverfræðilegum meistaranámsleiðum Háskólaseturs Vestfjarða, Haf- og strandsvæðastjórnun og Sjávarbyggðafræði.

Kennslan fer fram í lotum og öll námskeið eru kennd á ensku. Nemendahópurinn er alþjóðlegur og kennarar koma víða að úr heiminum, sem skapar fjölbreytt og lifandi námsumhverfi þar sem ólík reynsla og sjónarhorn mætast.

Það getur því verið tilvalin leið til að bæta við sig sérhæfðri þekkingu án þess að skuldbinda sig til heils meistaranáms.

Get ég sótt um?

Inntökuskilyrði í einstök námskeið eru almennt þau sömu og fyrir meistaranámið í heild. Umsækjendur þurfa því að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi, svo sem BA-, BSc- eða BEd-gráðu, eða öðru sambærilegu námi.

Þar sem öll kennsla fer fram á ensku þurfa umsækjendur jafnframt að hafa góða enskukunnáttu.

Gestanemar taka fullan þátt í námskeiðinu og þurfa að uppfylla sömu kröfur um mætingu og þátttöku og aðrir nemendur. Námskeiðin eru ekki í boði í fjarnámi.

Kíktu í kennsluskrána – þú gætir fundið eitthvað óvænt

Umsóknir um einstök námskeið eru afgreiddar jafnóðum yfir skólaárið, frá 1. ágúst til 30. júní. Umsókn þarf þó að berast að minnsta kosti tveimur mánuðum áður en námskeið hefst og inntaka er háð samþykki meistaranámsnefndar.

Skoðaðu kennsluskrá Háskólaseturs Vestfjarða og kynntu þér námskeiðin sem eru í boði. Kannski er þar einmitt námskeiðið sem gefur þér nýja þekkingu, nýja sýn – eða jafnvel ýtir þér af stað í nýja átt.