Íslenskunámskeið Háskólaseturs Vestfjarða í fullum gangi

Árlega heldur Háskólasetur Vestfjarða sumarnámskeið í íslensku og í ár er engin undantekning þar á. Alls eru 88 nemendur skráðir á fimm námskeið sumarsins, þar sem kennt er á mismunandi stigum, allt frá byrjendum til lengra kominna nemenda.

Sérstaða íslenskunámskeiðanna felst ekki síst í staðsetningunni. Ísafjarðarbær er lítill bær, en hefur þó flest það sem einkennir stærri bæi. Hér er að finna bíó, veitingastaði, tónlistarskóla, sundlaug, íþróttafélög, kóra og fjölbreytt menningarlíf. Námskeiðin nýta þessa sérstöðu vel, enda býður bærinn upp á fjölmörg tækifæri til að nota íslenskuna utan kennslustofunnar.

Ísafjörður er einnig samfélag þar sem hlutirnir þurfa ekki alltaf að ganga hratt fyrir sig og bæjarbúar eru jafnan mjög viljugir að gefa sér tíma, spjalla og hjálpa til við íslenskunámið. Háskólasetrið leggur ríka áherslu á að gera samfélagið að hluta af námskeiðunum, enda trúum við því að tungumál lærist best með því að nota það. Í kennslustofunni fá nemendur tól og tæki málsins, en úti í samfélaginu fá þeir tækifæri og hvatningu til að nota það sem þeir læra.

Íslenskunámskeiðin byggja á Evrópska tungumálarammanum og eru á erfiðleikastigum frá A1, fyrir byrjendur, upp í B2, fyrir framhaldsnemendur. Nemendur sitja tíma í kennslustofu með kennara í þrjár klukkustundir á dag, en eftir hádegi tekur við fjölbreytt dagskrá valnámskeiða þar sem íslenskan er lærð í frjálslegri kringumstæðum og í gegnum ýmis verkefni.

Á valnámskeiðunum fá nemendur meðal annars tækifæri til að baka pönnukökur, heimsækja söfn og fyrirtæki, fá góða gesti, fara í leiki, spila, prjóna og horfa á kvikmyndir. Þannig verður íslenskunámið bæði lifandi og hagnýtt, og nemendur kynnast um leið samfélaginu, menningunni og daglegu lífi á Ísafirði.

Í sumar eru Háskólasetur Vestfjarða og Gefum íslensku séns einnig í samstarfi um nokkra viðburði sem standa bæði íslenskunemum og öðrum áhugasömum til boða. Þriðja rýmið verður haldið tvisvar í sumar og ein Hraðíslenska fer fram á Dokkunni. Þá verður boðið upp á þrjár spjallferðir um bæinn í samstarfi við Ferðafélag Ísfirðinga.

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á íslensku, tungumálanámi og lifandi samfélagi til að mæta á viðburðina. Nánari upplýsingar um dagsetningar og tímasetningar má finna á vefsíðu Gefum íslensku séns.