Háskólasetur Vestfjarða í nýrri grein um háskóla og samfélagsþróun

Við erum afar ánægð að segja frá nýrri grein sem okkur er mjög hugleikin. Greinin ber heitið Higher Education as Coastal Community Development: Lessons Learned From the University Centre of the Westfjords, Iceland og birtist í tímaritinu Ocean and Society. Þar er litið til 20 ára reynslu Háskólaseturs Vestfjarða sem háskólastofnunar í dreifðu strandsamfélagi.

Hugmyndin að greininni kviknaði þegar tímaritið auglýsti eftir greinum um mikilvægi háskóla í samfélaginu. Þar sem Háskólasetur Vestfjarða var frá upphafi stofnað sem verkfæri til byggðaþróunar töldum við okkur hafa mikilvæga reynslu fram að færa, ekki síst á 20 ára afmælisári setursins.

Við höfum einnig tekið saman stefnuyfirlit á íslensku, sem nálgast má hér, þar sem fjallað er um helstu atriði greinarinnar. Þar kemur meðal annars fram hvernig Háskólasetur Vestfjarða leggur sitt af mörkum til samfélagsþróunar sem svokölluð kjölfestustofnun. Með því er átt við stofnun sem skapar verðmæti fyrir nærsamfélagið, ekki aðeins í efnahagslegum skilningi heldur einnig með samfélagslegri þátttöku, menntun, þekkingu og tengslum.

Í greininni er meðal annars fjallað um hvernig HV hefur boðið upp á nám sem tengist staðbundnum veruleika og þörfum samfélagsins, bæði með fjarnámi og með því að laða til sín nemendur utan svæðisins. Margir þeirra verða virkir þátttakendur í mannlífi og menningu staðarins á meðan á námi stendur.

Jafnframt er fjallað um þær áskoranir sem fylgja því að reka háskólastofnun í dreifðu samfélagi á norðurslóðum. Þar má nefna lágt hlutfall íslenskra nemenda og ýmis skipulagsleg og rekstrarleg verkefni sem tengjast starfsemi af þessu tagi.

Greinin tengist einnig fræðilegri umræðu um svokallað „þriðja hlutverk“ háskóla, sem snýr að samfélagslegu hlutverki þeirra og framlagi til félagslegrar, efnahagslegrar og menningarlegrar þróunar. Með öðrum orðum má segja að borgaralegur háskóli sé háskóli sem býður upp á menntun og þekkingu í nánum tengslum við staðbundnar aðstæður, þarfir og forgangsröðun.

Á þeim 20 árum sem Peter Weiss gegndi starfi forstöðumanns Háskólaseturs Vestfjarða vann hann markvisst í þessum anda. Í starfi sínu tengdi hann saman háskólamenntun, samfélagsþróun og þarfir nærsamfélagsins á þann hátt sem greinin varpar ljósi á.

Fyrir þau sem hafa áhuga á þróun háskólastarfs, byggðaþróun og samfélagslegu hlutverki menntastofnana er 20 ára reynsla Háskólaseturs Vestfjarða bæði dýrmætt og spennandi rannsóknarefni.

Við hlökkum til næstu 20 ára hjá Háskólasetri Vestfjarða!