Dagbók skipstjóra - apríl 2026

Cat skipstjóri með gríska sjóarahúfu sem hún fékk að gjöf frá nemanda.
Cat skipstjóri með gríska sjóarahúfu sem hún fékk að gjöf frá nemanda.

Tíminn flýgur – eins og þegar börnin stækka of hratt, þegar maður lendir í kanínuholu á netinu, eða þegar maður er nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða. Það er ótrúlegt að einn mánuður sé liðinn síðan ég tók við 1. apríl. Það hefur verið margt að gera, mörg spennandi verkefni, bæði stór og smá: til dæmis að læra hversu langan tíma það tekur að breyta lykilorðum, eða ákveða hvernig nákvæmlega maður á að erfa 20 ár af skrám, upplýsingum og reynslu. Ég er mjög þakklát fyrir allt það góða fólk í kringum mig sem hefur hjálpað mér á þessum umskiptatíma.

Mér hefur alltaf líkað óformlegar færslur frá fólki í forystustöðum sem gefa yfirlit yfir starfsemi sína. Við reynum að birta fréttir en það er líka gott að fá smá samhengi um það sem er að gerast hér „innanhúss“. Þess vegna ætla ég að skrifa mánaðarlegt yfirlit yfir það helsta í Háskólasetri Vestfjarða: mína eigin „skipstjóradagbók“. (Við erum þekkt fyrir kennslu og rannsóknir sem tengjast hafinu og ég er með pungapróf, svo ég varð að kalla það þetta!).

Í apríl höfum við fengið marga gesti. Til dæmis höfum við fengið heimsóknir frá frambjóðendum í sveitarstjórnarkosningunum. Að sjálfsögðu teljum við hjá HV að háskólanám, og menntun almennt, ætti að vera lykilþáttur í öllum framboðslistum flokkanna! Þess vegna erum við alltaf spennt að deila hugmyndum með frambjóðendum í stjórnmálum um styrkingu kjarnastarfsemi HV í tengslum við mennta- og rannsóknarþarfir Vestfjarða.

Stærsta verkefnið í apríl hefur verið próftíminn. Sem síðasta prófið í námi sínu kynna meistaranemar okkar niðurstöður lokaritgerðar sinnar í opnum fyrirlestrum. Ég læri alltaf svo mikið af þessum kynningum: til dæmis eru magar hrognkelsa fullir af marglyttu, og það eru tvenns konar vörður á Hornströndum! Það er líka próftími fyrir fjarnema í íslenskum Háskólum, og við höfum verið önnum kafin við að sitja yfir þessum prófum, til dæmis í leikskólafræði, hjúkrunarfræði, viðskiptafræði, lögreglufræði, og fjölmiðlafræði.

Tveir þingmenn frá sænska þinginu komu sérstaklega til Vestfjarða til að læra um þróun dreifbýlis. Með ánægju buðum við þá velkomna til HV og deildum reynslu okkar af meistaranámi í dreifbýlissamfélögum, ekki síst vegna þess að HV hefur skýrt markmið um að styðja við þróun dreifbýlis. Í tengslum við þetta er mjög spennandi að loksins sé komin út grein okkar sem fjallar um 20 ára sögu HV sem þróunarverkfæri strandsamfélaga.

Að lokum er eitt mjög spennandi verkefni í gangi um þessar myndir, en við höldum áfram að vinna að nýju samstarfsverkefni í meistaranámi í sjálfbærri fiskeldisframleiðslu, sem Háskólinn á Hólum heldur utan um og í sterku samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Landbúnaðarháskóla Íslands. Undirbúningsnefndin fundaði á Ísafirði og við hlökkum til að taka á móti fyrstu nemendunum í haust. Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein á Vestfjörðum og það er mikilvægt fyrir Háskólann á Hólum að vera hluti af þessu samstarfi til að bregðast við nýjum menntunarþörfum á Vestfjörðum og á Íslandi í heild.