CoLab-verkefnið, Coastal laboratories connecting people and nature, er þverfaglegt samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að veita strandsamfélögum opinn aðgang að grunnþekkingu. Verkefnið styður við þróun staðbundinna hagkerfa á grunni frumkvæðis heimamanna og byggir brýr milli fólks, náttúru og menningar með sjálfbærni að leiðarljósi.
Verkefnið, sem hófst í apríl, er leitt af Háskólasetri Vestfjarða í samstarfi við Fine Foods Islandica ehf., Listaháskólann í Gdańsk og Vilnius Academy of Arts.
Sem hluti af verkefninu verður haldin vinnustofa um lífefni þann 9. júlí í Sauðfjársetrinu á Ströndum. Þar er þátttakendum boðið í náttúrugöngu og skapandi vinnustofu þar sem þeir læra að nýta staðbundin náttúruleg hráefni til að búa til hversdagslega hluti með einföldum og aðgengilegum aðferðum.
Vinnustofan hefst á leiðsögn um náttúruna í kringum Sævang. Þar læra þátttakendur að þekkja plöntur og þörunga og heyra sögur af tengslum þeirra við staðbundnar þjóðsögur og menningu.
Að göngunni lokinni taka við verklegir tímar með hönnuðum sem vinna með lífefni. Þar læra þátttakendur að búa til hversdagslega hluti með því að blanda saman staðbundnum náttúrulegum efnum, náttúrulegum bindiefnum, trefjum, fylliefnum og litarefnum.
Rut Bjarnadóttir, textíllistakona, mun einnig kenna pappírsgerð á íslensku. Þar læra þátttakendur einfaldar aðferðir við að búa til listpappír úr endurunnum lífmassa úr plöntum og þangi sem annars er oft hent.
Vinnustofan er ætluð öllum aldurshópum og ekki er þörf á fyrri reynslu af hönnun eða listsköpun. Börn eru velkomin í fylgd fullorðinna, þar sem hitaplötur og heitir vökvar verða notuð í vinnustofunni.
Fjöldi plássa er takmarkaður og því þarf að skrá sig til að tryggja sæti.