Páskaopnun í Háskólasetri Vestfjarða

Háskólasetur Vestfjarða verður lokað hluta páskanna. Húsið verður lokað föstudaginn langa, 3. apríl, og laugardaginn 4. apríl. Inngangurinn frá Suðurgötu verður læstur og lyklaspjöld ekki virk á meðan. Í neyðartilvikum má hafa samband í síma 844 3148.

Við óskum öllum nemendum gleðilegra páska og vonum að þið eigið notalega frídaga með fjölskyldu og vinum. Einnig vonum við að sem flestir njóti þess að taka þátt í stemningunni í bænum og skemmti sér vel á Aldrei fór ég suður.