Undanfarin ár hefur íslenskt samfélag tekið miklum breytingum og sífellt stærri hópur íbúa á Íslandi hefur íslensku ekki að móðurmáli. Íslenskan gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og því skiptir miklu máli að fólki standi til boða fjölbreytt og vandað nám í íslensku sem öðru máli.
Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands býður upp á fjölbreyttar námsleiðir í íslensku sem öðru máli, bæði í staðnámi og fjarnámi. Námið er metnaðarfullt og krefst elju og ástundunar, en er jafnframt þannig uppbyggt að hægt er að stunda það í hlutanámi samhliða vinnu.
Dagana 27. apríl til 4. maí verða haldnir kynningarfundir um námsleiðir í íslensku sem öðru máli við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Alls verða tíu kynningarfundir í boði og hægt er að skrá sig á einn eða fleiri fundi. Flestir fundanna fara fram í gegnum Teams-fjarfundarbúnað, en tveir þeirra verða haldnir á staðnum.
Fundir sem fara fram á vinnutíma taka um 30–35 mínútur með spurningum, en fundir utan hefðbundins vinnutíma taka um 45 mínútur með spurningum. Kynningarnar verða haldnar á íslensku og ensku.
Kynningarnar eru ætlaðar öllum sem hafa áhuga á að læra íslensku, en einnig vinnuveitendum sem vilja kynna sér leiðir til að styðja við máltileinkun starfsfólks síns og fá betri yfirsýn yfir námsleiðirnar.
Sérstök kynning verður haldin í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði fimmtudaginn 30. apríl klukkan 17:00.
Hér er skráningareyðublað sem við biðjum þig vinsamlega um að nota hafir þú hug á að sækja einn fundanna.
Hér er hlekkur á fundina á Teams. Auðkenni fundar: 366 630 710 680 50, Lykilorð: J33gD7LB (ef þarf)
Hér má finna hlekki á námsframboð og upplýsingar um inntökupróf:
BA-nám í íslensku sem öðru máli | Háskóli Íslands [English version]
Íslenskustoð – Grunndiplóma | Háskóli Íslands [English version]
Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám – Grunndiplóma | Háskóli Íslands [English version]
Inntökupróf í Íslensku sem annað mál, hagnýtt nám | Háskóli Íslands [English version]
Inntökupróf í BA-nám í íslensku sem öðru máli og Íslenskustoð | Háskóli Íslands [English version]
*Umsóknarfrestur er til 20. maí