HV á ráðstefnu UArctic í Þórshöfn í Færeyjum

Catherine ásamt öðrum háskólarektorum í The Rector's Forum
Catherine ásamt öðrum háskólarektorum í The Rector's Forum

Mjög árangursrík ráðstefna UArctic (Háskólans á Norðurslóðum) fór fram í síðustu viku þar sem 1.400 þátttakendur frá öllum heimshornum hittust í Færeyjum til að ræða og miðla upplýsingum um þverfagleg efni tengd norðurslóðum. UArctic er net háskóla á norðurslóðum og HV hefur verið meðlimur frá upphafi. Í gegnum UArctic njóta nemendur okkar tækifæra til skiptináms við aðrar stofnanir, og starfsfólk okkar og kennarar vinna saman að kennaraskiptum og rannsóknum.

Á fundinum í Þórshöfn létum við til okkar taka á nokkra vegu. Í fyrsta lagi var Catherine Chambers forstöðumanni boðið að taka þátt í pallborðsumræðum um mikilvægi háskólamenntunar í dreifbýlissamfélögum, málefni sem HV þekkir mjög vel! Þar lögðum við áherslu á sterk tengsl okkar við Háskólann á Akureyri sem dæmi um farsælt samstarf lítilla og stórra stofnana á norðurslóðum.

Því næst kynntu rannsóknarsérfræðingarnir okkar, Matthias Kokorsch og Jóhanna Gísladóttir, tilviksrannsókn sína í verkefninu „Lost to Climate“ á málstofu sem helguð var verkefninu. Matthias og Jóhanna vinna nú hörðum höndum að þessu verkefni, sem og öðru NORDFORSK-verkefni, og það er ánægjulegt að geta kynnt rannsóknarverkefni okkar á fyrstu stigum þeirra á ráðstefnum og fengið gagnlega endurgjöf frá samstarfsfólki.

CMM-meistaraneminn Una Lilja Erludóttir kynnti bráðabirgðaniðurstöður úr meistaraverkefni sínu um haflæsi á veggspjaldasýningu. Mikill áhugi var á efninu, enda var eitt af meginþemum ráðstefnunnar “Tengsl við hafið” (e. Ocean Connectivity) og því margt fagfólk á sviði haf- og sjávarmála á staðnum.

Una Lilja með veggspjald sitt um haflæsiAð lokum kom skemmtilega á óvart hversu mörg önnur tengsl við HV voru á ráðstefnunni. Þar voru stjórnarmaður, fjórir kennarar, þrír útskrifaðir nemendur, einn núverandi nemandi og þrír starfsmenn, öll á fullu við að mynda tengsl og læra. Okkur tókst að ná mynd af hópnum — eða að minnsta kosti flestum okkar — og svo bættust hin við á annarri mynd. Við erum stolt af víðtæku tengslaneti okkar og þeim fjölbreyttu leiðum sem við leggjum okkar af mörkum á ráðstefnum á borð við UArctic.

 

Leiðbeinandi Unu Lilju í lokaritgerð er Catherine Chambers og þær mættu í eins jökkum. Tilviljun… eða bara færeyskt veður?