Háskólasetur Vestfjarða hlaut á laugardaginn viðurkenningu Vísindavöku Rannís 2026 fyrir vísindamiðlun. Catherine Chambers, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða, tók við viðurkenningunni úr hendi Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Viðurkenningin er veitt fyrir öfluga vísindamiðlun Háskólasetursins og sérstaklega fyrir starf sem miðar að því að efla haflæsi í nærsamfélaginu. Þar hefur samstarf við grunnskóla, menningarstofnanir og aðra aðila á Vestfjörðum gegnt mikilvægu hlutverki.
Á undanförnum árum hefur Háskólasetrið staðið að fjölbreyttum verkefnum þar sem börn og ungmenni fá að kynnast hafinu og vísindum með virkri þátttöku.
Eitt þeirra var verkefnið Furðuverur í fjörunni, vísinda- og listasmiðja sem Háskólasetrið hélt í samstarfi við Menningarmiðstöðina Edinborg. Þar rannsökuðu grunnskólabörn lífríki fjörunnar, skoðuðu lífverur úr krabbagildrum og unnu síðan áfram með reynsluna í listasmiðju.
Í verkefninu HOBB – Hafið okkar, blá Bolungarvík unnu nemendur Grunnskóla Bolungarvíkur með Háskólasetrinu að haflæsi og vísindum með áherslu á ágengar tegundir. Nemendur tóku meðal annars þátt í sýnatöku og gagnasöfnun og miðluðu síðan því sem þeir lærðu í gegnum list og hlaðvarpsgerð.
Verkefnið SeaGirls nálgaðist haflæsi frá öðru sjónarhorni. Í verkefninu, sem unnið var í samstarfi við Hversdagssafnið, fékk hópur stúlkna einnota filmuvélar yfir sumartímann og skráði með myndum eigið samband við hafið. Verkefnið tengist jafnframt stærri umræðu um kyn, hafið og þátttöku kvenna í sjávarútvegi og sjálfbærni hafsins.
Í Skolvakt, eða FlushWatch, fengu nemendur í 6. og 7. bekk Grunnskóla Bolungarvíkur að stýra neðansjávardróna í höfninni og skoða með eigin augum hvað getur borist út í hafið í gegnum fráveitukerfið. Verkefnið varð þannig að lifandi leið til að ræða mengun, fráveitu og áhrif daglegra athafna á hafið.
Þótt verkefnin séu ólík eiga þau það sameiginlegt að færa vísindin nær börnum og ungmennum og tengja þau við eigið nærumhverfi. Þátttakendur fá ekki aðeins fræðslu heldur fá þeir sjálfir að rannsaka, spyrja spurninga, safna gögnum, skapa og miðla.
Háskólasetur Vestfjarða þakkar Rannís innilega fyrir viðurkenninguna. Hún er mikilvæg hvatning til að halda áfram að þróa aðgengilega og lifandi vísindamiðlun og skapa fleiri tækifæri fyrir samfélagið á Vestfjörðum til að taka virkan þátt í vísindum.