Háskólahátíðin fór að venju fram á Þjóðhátíðardegi á Hrafnseyri, en í ár var hún sérstaklega vegleg í tilefni af 20 ára afmæli Háskólaseturs Vestfjarða.
Ræðumaður dagsins var fyrrverandi forseti Íslands (2016–2024), Guðni Th. Jóhannesson. Margrét Hallmundsdóttir, settur staðarhaldari á Hrafnseyri, innleiddi þann gamla sið að láta fjallkonuna koma fram. Gestir voru um 150 talsins og að venju var súpa og brauð ásamt kaffiveitingum.
Í tilefni 20 ára afmæli Háskólaseturs Vestfjarða (HV) kynnti forstöðumaður, Peter Weiss, nýjan húfu flokk til heiðurs stjórnarmönnum HV. Nemendur hafa frá upphafi fengið útskriftarhúfur með rauðum skúf og áletrun um útskriftarár. Nú í ár fengu stjórnarmenn húfu með bláum skúf og áletrun þar sem stendur „stjórn“. Með þessu var vakin athygli á mikilvægu hlutverki stjórnar, sem í gegnum árin hefur fundað yfir 200 sinnum án endurgjalds og lagt sitt af mörkum til stefnumótunar og uppbyggingar stofnunarinnar. Forstöðumaður benti á að sé tekið mið af fjölda funda og almennu tímakaupi megi áætla að framlag stjórnar nemi um 10–20 milljónum króna, og telst hún því einn stærsti styrktaraðili Háskólasetursins.
Í dag sitja fimm fulltrúar í stjórn: tilnefndir af Ísafjarðarbæ, rannsóknarstofnunum, háskólum og aðilum vinnumarkaðar, auk eins sem kosinn er beint á aðalfundi.
Þeir stjórnarmenn sem mættu voru Halldór Halldórsson stjórnarformaður 2005-2015 og mesti hvatamaður háskólaseturs, Harpa Grímsdóttir stjórnarformaður 2016-2021 og 2023-2025, Soffía Vagnsdóttir, í stjórn á upphafsárunum 2005-2009 og Elísabet Gunnarsdóttir, 2015 til í dag, Kristján G Jóakimsson sem var í stjórn lengst allra, 2005-2019, sem og Elías Jónatansson sem er í stjórn síðan 2019 og er núverandi stjórnarformaður en hefur verið stjórnarformaður áður 2021-2023.
Elías Jónatansson tók svo til máls og ávarpaði samkomuna á Hrafnseyri í tilefni tuttugu ára afmælis þar sem hann þakkaði fráfarandi forstöðumanni, Peter Weiss, sérstaklega fyrir, auk þess sem hann hrósaði öllum starfsmönnum fyrir faglega og metnaðarfulla uppbyggingu.
Í kjölfar hátíðarhalda fór fram útskriftarathöfn fyrir þá meistaranema sem stundað hafa nám hjá HV en útskrifast formlega frá Háskólanum á Akureyri. Nýi rektor HA, Áslaug Ásgeirsdóttir, mætti á háskólahátíð of afhenti útsriftargögn og sýndi með því mikilvægi samstarfsins milli skólanna. HV er afar þakklátt rektorum HA fyrir að leggja land undir fót til að heiðra útskriftarnema með nærveru sinni.
Rektor flutti ávarp bæði til samkomugesta og útskriftarnema. Dr. Matthías Kokorsch, fagstjóri meistaranáms í Sjávarbyggðafræði, ávarpaði einnig útskriftarnema og færði Peter Weiss þakkir fyrir hönd kennara og samstarfsfólks. Útskriftarneminn Aubrey Lynn Newland flutti áhrifamikið ávarp sem snerti við öllum. Peter Weiss tók síðan til máls og hóf ræðu sína snortinn af orðum hennar.
Alltaf eru einnig velkomnir þeir nemendur sem hafa lokið námi á fyrra ári en gátu ekki verið viðstaddir þegar þeirra árgangur útskrifaðist. Þeir fá afhenta húfu merkta með sínu útskriftarári.
Nemendum HA stendur til boða að fá afhenda sín útskriftargögn úr höndum síns rektors á Hrafnseyri – og halda í kjölfar útskriftarhóf heima. Í ár útskrifaðist Telma Rut Sigurðardóttir úr fjarnámi og mætti í útskriftarathöfn á Hrafnseyri frekar en til akureyrar.
Forstöðumaður HV afhenti einnig Margréti Hallmundsdóttur fornleifafræðings útskriftargögn, sem nýverið lauk námi við Háskóla Íslands en hafði ekki haft tök á að sækja eigin útskriftarathöfn. Margréti var óskað til hamingju með handabandi frá rektor, birkihríslu frá forstöðumanni og lófataki viðstaddra.
Óvæntur viðburður átti sér stað þegar Guðrún Sigríður Matthíasdóttir, þjónustustjóri og starfsmaður með lengstan starfsaldur í Vestrahúsi, færði fráfarandi forstöðumanni húfu með grænum skúf og áletrun: „20 ár“.
Að lokum settu útskriftarnemar niður sínar birkihríslur í Bælisbrekku á Hrafnseyri – aðrir tóku þær með sér heim til að planta þar sem þeim er hjartfólgnast. Þar myndast smám saman skógur útskrifaðra nemenda sem eru stolt og mergur hvers háskóla.