Háskólahátíð 17. júní á Hrafnseyri

Á Háskólahátíð fögnum við með þeim nemendum sem útskrifast úr meistarnámi hjá Háskólasetri, sem og fjarnemum af Vestfjörðum.

Skólaárið 2025/2026 hafa 24 meistaranemendur skilað lokaverkefnum í sjávarbyggðafræði og haf- og strandsvæðastjórnun. Báðar námsleiðir eru kenndar hjá Háskólasetri Vestfjarða í samvinnu við Háskólann á Akureyri. Formleg útskrift er frá HA, en Háskólasetrið efnir til Háskólahátíðar á Hrafnseyri þann 17. júni 2026, líkt og fyrri ár, þar sem útskriftarnemendur fá afhent prófskírteinin. Háskólasetur Vestfjarða býður einnig velkomna alla vestfirska útskriftarnema til að samfagna á Háskólahátíðinni á Hrafnseyri.

Auk útskriftarnema bjóðum við hjartanlega velkomna alla fyrrverandi og núverandi nema, kennara, starfsmenn, stjórnarmenn og stofnaðila, sem og aðra samstarfsaðila í gegnum tíðina.

Það er Háskólasetrinu mikill heiður að rektor Háskólans á Akureyri hefur tilkynnt komu sína eins og árlega. Auk þess er von á fyrri nemendum sem og kennurum og stjórnarmönnum. Við vonumst til að sjá sem flesta velunnara Háskólasetursins á þessum hátíðisdegi.

Dagskrá:

  • 9:00 Mæting í rútu fyrir framan Háskólasetrið (skráning í rútu nauðsynleg).
  • 11:00 Guðsþjónusta á Hrafnseyri í tilefni þjóðhátíðardagsins. (Kl 11-12: Súpa í boði fyrir nemendur sem eru að útskrifast, til sölu fyrir foreldra og núverandi nema/gesti sem sækja ekki Guðsþjónustu.)
  • 12:30 Þjóðhátíðardagskrá á Hrafnseyri
    • 12:30 Gestir boðnir velkomnir og sögð nokkur orð – Fundarstjóri Guðni Th Jóhannesson, fv. forseti Íslands
    • 12:45 Hátíðarræða, fjallkonan, tónlistaratriði
  • 14:00 Hátíðleg athöfn í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda
    • Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri
    • Maxine Westhead f.h. kennara
    • Katrin Zender, f.h. útskriftarnemenda
    • Catherine Chambers, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða
    • Afhending skírteina og húfa
  • 15:00 Samsöngur Hafið bláa hafið, dagskrá lýkur. Myndataka og gróðursetning.
  • 15:30 Rúta Hrafnseyri-Ísafjörður

Háskólahátíðin er opin almenningi og öll velkomin að samfagna með útskriftarnemum. Athöfnin verður úti undir Bælisbrekku ef veður leyfir, annars inni í kapellu.

Ókeypis er í rútuna og öll velkomin meðan sæti eru laus, en nauðsynlegt er að skrá sig til að tryggja sér sæti. Brottför frá Háskólasetri verður ekki seinna en kl 9:00.

Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040, fyrir 11. júní 2026, til að skrá ykkur í rútuna.