Gefum íslensku séns hlýtur viðurkenningu íslenskrar tungu 2026

Félagið Gefum íslensku séns, sem á uppruna sinn hjá Háskólasetri Vestfjarða, hlaut viðurkenningu íslenskrar tungu 2026 við hátíðlega athöfn í Eddu þann 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu. Viðurkenningin, sem greint er frá í fréttabréfi félagsins, er veitt fyrir mikilvægt grasrótarstarf sem hvetur íslenskumælandi fólk til að styðja við íslenskunám með því að nota íslensku í daglegum samskiptum.

Í rökstuðningi valnefndar kemur fram að verkefnið, sem þróað var við Háskólasetur Vestfjarða, byggi á þeirri hugmynd að allir íslenskir málhafar séu „almannakennarar“. Með því er átt við að allir sem tala íslensku geti hjálpað öðrum að læra málið með því að sýna þolinmæði og skilning í stað þess að skipta yfir í ensku. Í rökstuðningi valnefndar segir:

Gefum íslensku séns er þannig dæmi um mikilvægt grasrótarstarf sem nálgast íslenskukennslu á frumlegan og skilningsríkan hátt, enda er tungumálanám ekki bundið við kennslustofur heldur alltumlykjandi í samfélaginu
Frá Ísafirði til landsins alls

Verkefnið á uppruna sinn í starfi Ólafs Guðsteins Kristjánssonar, sem kenndi íslensku við Háskólasetur Vestfjarða. Ólafur hafði sjálfur reynslu af því að læra nýtt tungumál erlendis og vildi stuðla að því að fólk sem lærir íslensku fengi sambærileg tækifæri til að æfa sig í daglegu lífi.

Með stuðningi Peters Weiss, fyrrverandi forstöðumanns Háskólaseturs Vestfjarða, varð hugmyndin að átakinu Gefum íslensku séns. Peter gaf verkefninu nafn sitt og jafnframt einkunnarorðin „Við erum öll almannakennarar“.

Á undanförnum árum hefur fjöldi viðburða verið haldinn á Ísafirði og víðar á Vestfjörðum undir merkjum verkefnisins. Í byrjun árs 2026 var stofnað formlegt félag til að breiða hugmyndafræðina út um land allt og er starf á vegum þess þegar hafið eða í undirbúningi á nokkrum stöðum.

Eiríkur Rögnvaldsson, gjaldkeri félagsins, tók við viðurkenningunni í fjarveru Peters Weiss, formanns félagsins, og Ólafs Guðsteins Kristjánssonar, ritara þess.

Í þakkarávarpi sínu lagði Eiríkur áherslu á að ábyrgðin á íslenskunámi þeirra sem flytjast til landsins hvíli ekki eingöngu á nemendum og kennurum heldur samfélaginu öllu, og hvatti hann landsmenn til að skapa fleiri tækifæri til að nota íslensku í daglegum samskiptum.

Við gefum íslenskunni nefnilega ekki séns – og við gefum þeim sem eru að læra hana ekki séns.

Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á því frumkvöðlastarfi sem hófst við Háskólasetur Vestfjarða og hefur nú þróast í verkefni á landsvísu með það að markmiði að efla íslensku og mállega inngildingu í samfélaginu.

Fjölsótt íslenskunámskeið við Háskólasetur Vestfjarða

Háskólasetur Vestfjarða heldur áfram að leggja sitt af mörkum til íslenskukennslu. Á hverju sumri stendur setrið fyrir fjölsóttum íslenskunámskeiðum sem laða að þátttakendur alls staðar að úr heiminum. Þar kemur saman bæði fólk búsett erlendis sem hefur áhuga á íslenskri tungu og menningu og nemendur og aðrir nýir Íslendingar sem vilja efla íslenskukunnáttu sína og öðlast meira öryggi í daglegum samskiptum.

Nánari upplýsingar um íslenskunámskeið sumarsins 2027 má finna á vef Háskólaseturs Vestfjarða.