Það er gaman að segja frá því að Háskólasetur Vestfjarða (HV), Strandabyggð og Fine Foods Íslandica ehf á Hólmavík hafa hlotið styrk frá Evrópusambandinu sem nemur 70 þúsund evrum eða rúmum 10.3 milljónir krónum til að styðja við framkvæmd IceKelp verkefnisins á tímabilinu 2024-2026. Markmiðið er að hanna líkan fyrir sjálfbæra þararækt og blátt hagkerfi í dreifbýli. Greint er frá þessu á vef Strandabyggðar.
IceKelp verkefnið er hluti af mun stærra verkefni Atlantic-Arctic AGORA (A-AAGORA) sem styður við markmið framkvæmdarstjórnar Evrópu um verndum og uppbyggingu haf- og vatnasvæða fyrir árið 2030 og er þar heildar fjárhæðin 9.778.174,76 € eða rúmur 1.4 milljarður íslenskra króna. Þar er markmiðið hjá A-AAGORA að þróa nýstárlegar lausnir til að virkja bláa hagkerfið í sjávarbyggðum. Í ferlinu er lögð áhersla á þátttöku nærsamfélagsins og hagsmunaaðila á sama tíma og tryggja þarf umhverfisvernd og stuðla að félagslegri seiglu.
Helstu samstarfsaðilar A-AAGORA eru sveitarfélög í Noregi, Írlandi, Portúgal og á Íslandi tekur Strandabyggð þátt, eins og fyrr segir. Allir þessir aðilar eru í samstarfi við rannsóknarhópa og sérstaklega Trøms-sveitarfélagið í Noregi, sem prófar og metur lausnir fyrir sveitarfélög á Norður-Íshafssvæðinu.
Verkefnaáætlunin var kynnt af Fine Foods Íslandica ehf fyrir sveitarstjórn Strandabyggðar í nóvember 2024 sem samþykkti að styðja við verkefnið. Meðal markmiða verkefnisins eru:
Háskólasetur Vestfjarða stendur fyrir rannsóknum á líffræðilegum fjölbreytileika í kringum þararæktun og mun Alexandra Tyas, fyrrum meistaranemi hjá HV stýra rannsóknum á líffræðilegri fjölbreytni. Dr. Catherine Chambers er rannsóknarsjóri HV og mun sinna rannsóknum og fræðilega hluta verkefnisins og er jafnan fulltrúi HV sem sér um að upplýsa hagsmunaaðila varðandi þær rannsóknir. Fine Foods Íslandica hefur unnið mikla rannsólknarvinnu að undanförnu og verður sú vinna notuð sem grunnur í rannsóknir Háskólaseturs Vestfjarða.
Þorgeir Pálsson sveitarstjóri í Strandabyggð er fulltrúi Strandabyggðar. Jamie Lee hjá Fine Foods Íslandica ehf. og fyrrum meistaranemi HV er framkvæmdastjóri verkefnisins og ber rekstrarlega ábyrgð á verkefninu. Hún, ásamt Bergsveini Reynissyni hjá Nesskel ehf. munu miðla sinni þekkingu, og veita þjálfun í verklegri framkvæmd.