Ull úr heimabyggð varð að lampaskermum, skeljar að samsettum lífefnum og jurtir og þang að handgerðum pappír á vinnustofu CoLab á Ströndum í sumar. Þar mættust staðbundin þekking á náttúruauðlindum og skapandi hönnun með það að markmiði að kanna nýja möguleika í sjálfbærri nýtingu hráefna úr nærumhverfinu. CoLab-verkefninu er nú lokið og afrakstur þess, meðal annars fjölbreyttar leiðbeiningar og uppskriftir, er aðgengilegur öllum sem vilja kanna hvernig nýta megi lífrænar auðlindir á sjálfbæran og skapandi hátt.
CoLab (Coastal Laboratories Connecting People and Nature) var alþjóðlegt samstarfsverkefni undir forystu Háskólaseturs Vestfjarða, með þátttöku samstarfsaðila frá Íslandi, Litháen og Póllandi. Markmið verkefnisins var að kanna hvernig sjálfbær nýting náttúruauðlinda, skapandi hönnun og viðskiptaáætlanagerð geta stuðlað að atvinnuþróun í strandsamfélögum, með virðingu fyrir staðbundnum vistkerfum, menningu og þekkingu.
Verkefnið hlaut styrk frá Norrænu ráðherranefndinni í gegnum styrkjaáætlunina Prosperous Future. Auk Háskólaseturs Vestfjarða tóku Listaháskólinn í Vilníus, Listaháskólinn í Gdańsk og íslenska þörungafyrirtækið Fine Foods Íslandica þátt í samstarfinu.
Einn af hápunktum verkefnisins var opin vinnustofa sem haldin var í Sauðfjársetrinu á Ströndum þann 9. júlí 2026. Vinnustofan laðaði að sér þátttakendur víðs vegar að af landinu og var hluti af fjögurra daga heimsókn samstarfsaðila verkefnisins til Hólmavíkur og nágrennis.

Dagskráin fól meðal annars í sér náttúrugöngur með leiðsögn þar sem þátttakendur kynntust jurtum og þörungum svæðisins, auk hefðbundinna aðferða við nýtingu náttúruauðlinda. Einnig gafst þeim tækifæri til að prófa fjölbreyttar aðferðir við lífefnahönnun undir leiðsögn Austėju Platūkytė og Evelinu Kudabaitė frá Listaháskólanum í Vilníus. Þar voru meðal annars búnir til lampaskermar úr ull af svæðinu og samsett lífefni úr ýmsum hráefnum sem finna má við ströndina. Listakonan Rut Bjarnadóttir, sem býr og starfar á Hólmavík, leiddi jafnframt vinnustofu þar sem þátttakendur lærðu að búa til handgerðan pappír úr jurtum og þangi.
Vinnustofan var ekki aðeins vettvangur til að prófa nýjar aðferðir heldur einnig til að miðla þekkingu og reynslu. Þátttakendur uppgötvuðu nýja notkunarmöguleika kunnuglegra hráefna á meðan erlendu samstarfsaðilarnir fengu innsýn í staðbundna verkkunnáttu og tengsl heimafólks við náttúruna. Eða eins og Austėja útskýrði:
Nánari upplýsingar um vinnustofuna má finna á vefsíðu CoLab.
Helsti afrakstur CoLab-verkefnisins er útgáfa fjögurra hagnýtra leiðbeiningarita sem ætlað er að auðvelda einstaklingum, frumkvöðlum og samfélögum að kanna möguleika lífrænna hráefna úr nærumhverfinu. Í ritunum er fjallað um allt frá ábyrgri öflun hráefna og tilraunum með lífefni til umhverfisvænnar framleiðslu og þróunar viðskiptahugmynda.
Leiðbeiningarnar eru öllum aðgengilegar án endurgjalds á íslensku, litháísku, pólsku og ensku á vefsíðu CoLab:
Leiðbeiningar um sjálfbæra öflun hráefna: Fjalla um það sem hafa þarf í huga við söfnun og nýtingu náttúruauðlinda strandsvæða, með áherslu á ábyrga umgengni við umhverfið.
Uppskriftasafn: Inniheldur uppskriftir og aðferðir til að gera tilraunir með náttúruleg hráefni á borð við ull, skeljar og þang.
Leiðbeiningar um umhverfisvænar framleiðsluaðferðir: Kynna leiðir til að draga úr umhverfisáhrifum framleiðslu og stuðla að sjálfbærari vinnubrögðum.
Verkfærakista fyrir viðskiptaáætlanagerð: Veitir leiðsögn um hvernig þróa megi viðskiptahugmyndir og byggja upp smáfyrirtæki í heimabyggð sem byggja á sjálfbærri nýtingu staðbundinna auðlinda.
Með útgáfu leiðbeininganna lifir þekkingin sem skapaðist í verkefninu áfram og nýtist fleirum en þeim sem tóku beinan þátt. CoLab sýnir hvernig samstarf háskóla, hönnuða, fyrirtækja og heimafólks getur opnað nýja möguleika til nýsköpunar og atvinnuþróunar í strandsamfélögum, þar sem staðbundnar auðlindir, hefðir og þekking eru í forgrunni.