Aðalfundur Háskólaseturs Vestfjarða og áhugaverður fyrirlestur í Vísindaporti

Aðalfundur Háskólaseturs Vestfjarða verður haldinn n.k. föstudag, 22.03.2025 kl. 11:30. Fundurinn er opinn gestum og á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Í beinu framhaldi af aðalfundinum, um kl. 13:00, verður opinn fræðslufyrirlestur með Vöku Óttarsdóttur gæða- og mannauðsstjóra Háskólans á Akureyri.

Gervigreind er farin að hafa djúpstæð áhrif á samfélagið, vinnumarkaðinn og menntakerfið. Stofnanir og starfsfólk standa frammi fyrir nýjum áskorunum tengdum gæðum, trausti, fagmennsku og síbreytilegu vinnuumhverfi.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um þróun gæðamála hérlendis og erlendis á tímum gervigreindar og hvernig hægt er að byggja upp traust og skýra faglega umgjörð á tímum mikilla breytinga.Einnig verður rætt um áhrif þróunarinnar á mannauð, álag í starfi og mikilvægi þess að styðja starfsfólk í umhverfi þar sem kröfur, hraði og væntingar breytast hratt.

Súpa og léttar veitingar í boði og öll velkomin.

Erindið fer fram á íslensku

Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er einnig streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér.