Námskeið: Fólkið og hafið: Kerfishugsun fyrir strandbyggðir

Í námskeiðinu er kerfishugsun (systems thinking) kynnt sem aðferðafræði til að skilja og finna lausnir á sjálfbærniáskorunum sem strandsamfélög standa frammi fyrir. Þessar áskoranir spanna allt frá hnattrænum vanda, svo sem loftslagsbreytingum og súrnun sjávar, yfir í staðbundnar og svæðisbundnar áskoranir, líkt og tap á líffræðilegri fjölbreytni, að tryggja orkuöryggi, bæta samgöngur við afskekkt samfélög eða aðalsvæðingu (gentrification). Kerfishugsun býður upp á fræðilegan ramma og aðferðafræðilega verkfærakistu til að skilja og takast á við flókið eðli þessara áskorana.

Lesið meira um námskeiðið hér.

Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði.