Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.

Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.

Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.

Fólkið og hafið: Kerfishugsun fyrir strandbyggðir

  • Autumn 2026
  • Kennari: Dr. Eduard Nedelciu

Um námskeiðið

Í námskeiðinu er kerfishugsun (systems thinking) kynnt sem aðferðafræði til að skilja og finna lausnir á sjálfbærniáskorunum sem strandsamfélög standa frammi fyrir. Þessar áskoranir spanna allt frá hnattrænum vanda, svo sem loftslagsbreytingum og súrnun sjávar, yfir í staðbundnar og svæðisbundnar áskoranir, líkt og tap á líffræðilegri fjölbreytni, að tryggja orkuöryggi, bæta samgöngur við afskekkt samfélög eða aðalsvæðingu (gentrification). Kerfishugsun býður upp á fræðilegan ramma og aðferðafræðilega verkfærakistu til að skilja og takast á við flókið eðli þessara áskorana. Hún auðveldar greiningu á lykilstöðum (leverage points) til íhlutunar sem skila raunverulegum breytingum, gerir kleift að sjá fyrir langtímaafleiðingar og hjálpar til við að móta aðferðir sem styðja við seiglu og aðlögunarhæfni í umskiptum. Í stað þess að líta á vandamál sem einangruð fyrirbæri, lítur þessi nálgun á þau sem hluta af stærra, samtengdu kerfi þar sem félagslegir, umhverfislegir og efnahagslegir þættir hafa áhrif hver á annan á staðbundnum, svæðisbundnum og hnattrænum mælikvarða. Í gegnum námskeiðið fá nemendur kynningu á fræðum kerfishugsunar og kynnast helstu verkfærum hennar, svo sem línuritum um hegðun yfir tíma, skotskífurit, endurgjafarlykkjur, tafir, orsakatengslarit og áhrifapunkta. Ýmsar vettvangsferðir gefa tækifæri til að beita aðferðafræði kerfishugsunar á raunverulegar aðstæður, á meðan áskoranir í byggðaþróun sem ræddar eru í tímum bjóða upp á fræðilegri tilviksrannsóknir.

Kennari

Dr. Eduard Nedelciu:

Ed Nedelciu holds a PhD in Environment and Natural Resources from the University of Iceland and Stockholm University. His research focus is on sustainable natural resource management and the economic transition in the context of sustainability transformations. He is part of the SEAS postdoctoral programme on marine sustainability at the University of Bergen. In his postdoctoral project, Ed uses systems thinking and ecological economics theory to analyze the emergence of deep-sea mining, and its implication for policy-making, governance, and academia. He also teaches systems thinking and system dynamics modelling at the University of Iceland and the University of Bergen.

Kennsluskrá

Að námskeiði loknu skal nemandi:

  • hafa góðan skilning á lykilhugtökum kerfishugsunar.
  • geta tengt landfræðileg sjónarhorn við strandsamfélög.
  • geta greint á milli línulegrar nálgunar og kerfisnálgunar við lausn vandamála.
  • geta beitt helstu verkfærum kerfishugsunar við að greina strandhéruð og þróun í strandsamfélögum.
  • geta skilið og útskýrt áskoranir í byggðaþróun frá sjónarhorni ólíkra hagsmunaaðila.
  • hafa góða færni í að lesa og skrifa kafla í vísindagreinum um þróunar- og sjálfbærniþætti strandsamfélaga og -héraða.