Námskeið: Haf- og strandsvæðastjórnun: Kenningar og verkfæri

Stjórnun strandsvæða og sjávarauðlinda krefst þverfaglegrar rannsóknar í tengslum við heildstæða og samþætta nálgun. Þetta námskeið er ætlað til að kynna grundvallarhugtök, meginreglur, ferla og helstu áskoranir í stjórnun strandsvæða og hafsvæða með yfirferð á sögu og þróun samþættrar strandsvæðastjórnunar (Integrated Coastal Zone Management, ICZM) á mismunandi rýmiskölum – frá staðbundnum til alþjóðlegra. Námskeiðið veitir yfirlit yfir ólíkar kenningar, stjórnunarlíkön og hagnýtar aðferðir.

Lesið meira um námskeiðið hér.

Öll meistaranámskeið sem kennd eru við Háskólasetur eru opin gestanemum, skiptinemum og fólki úr atvinnulífinu og eru hluti af tveimur alþjóðlegum þverfaglegum meistaranámsleiðum, haf- og strandsvæðastjórnun, og sjávarbyggðarfræði