Hér má nálgast námskeiðslýsingar allra námskeiðanna sem í boði eru. Einnig má sjá skipulag námsins í sameiginlegri kennsluáætlun Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnunar.
Námskeiðin uppfylla kröfur ýmissa stéttarfélaga um námsstyrki. Vor- og sumarannir eru tilvaldar fyrir háskólanemendur sem vilja stytta námstímann í reglubundnu námi.
Fyrirspurnir sendist á kennslustjóra Háskólaseturs.
Stjórnun strandsvæða og sjávarauðlinda krefst þverfaglegrar rannsóknar í tengslum við heildstæða og samþætta nálgun. Þetta námskeið er ætlað til að kynna grundvallarhugtök, meginreglur, ferla og helstu áskoranir í stjórnun strandsvæða og hafsvæða með yfirferð á sögu og þróun samþættrar strandsvæðastjórnunar (Integrated Coastal Zone Management, ICZM) á mismunandi rýmiskölum – frá staðbundnum til alþjóðlegra. Námskeiðið veitir yfirlit yfir ólíkar kenningar, stjórnunarlíkön og hagnýtar aðferðir. Að auki eru valdar dæmisögur greindar til að varpa ljósi á áskoranir sem fylgja mismunandi nálgunum og niðurstöðum.
Að námskeiði loknu skal nemandi: