Ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið

Hin árlega ráðstefna um íslenska þjóðfélagið verður haldin vorið 2027 á Ísafirði. Dagskrá verður kynnt síðar. Ráðstefnan er kjörinn vettvangur fyrir fræðafólk innan hug- og félagsvísinda til að kynna rannsóknir sínar, fá innsýn í störf annarra og efla tengslanet sitt.

Ferðast til Ísafjarðar

Þann 28. maí er flug Icelandair áætlað frá RVK kl 8:30 og lending á IFJ kl 9:15. Ef hægt er, mælum við með því að koma daginn áður til öryggis. Það eru ekki lengur flug á laugardögum, þannig að er brottför aftur frá Ísafirði er ekki fyrr en á sunnudag. Gott er að hafa í huga að áætlanir Icelandair geta tekið breytingum, sem og getur veður haft áhrif á flug

Gisting

Hótel Ísafjörður

Tekin hafa verið frá herbergi á Hótel Ísafirði fyrir ráðstefnugesti þann 28-30 maí. Hver og einn sér um að ganga frá pöntun gistingar með því að senda tölvupóst með titlinum Ráðstefnan  í Maí  á netfangið lobby@hotelisafjordur.is. Fólk er hvatt til þess að ganga frá bókun sem fyrst og í allra síðasta lagi 10. mars.

Gistimöguleikar, morgunverður er innifalinn:

Hótel Torg    

  • single 27.800 kr á nótt
  • double/twin 33.000 kr á nótt
  • triple 41.100 kr á nótt

Hótel Horn (morgunmatur borinn fram á aðalhótelinu)

  • single 26.600 kr á nótt
  • double/twin 33.000 kr á nótt
  • triple 40.100 kr á nótt

Gamla Guesthouse (herbergi með sameiginlegu baðherbergi, morgunmatur borinn fram á aðalhótelinu)

  • single 21.200 kr á nótt
  • double/twin 25.000 kr á nótt
  • triple 30.900 kr á nótt

Stúdentagarðar Háskólasetur Vestfjarða

Við höfum einnig takmarkaðan fjölda stúdíóíbúða í boði á stúdentagörðum HV - fyrstir koma, fyrstir fá. Sendið póst á studentagardar@uw.is fyrir fleiri upplýsingar.